Fræðsluerindi, fundir og námskeið
Kennslutímabil: 20.–28. apríl 2026
Kennsludagar: Mánudagar, þriðjudagar og miðvikudagar
Lengd: Samtals 17 kennslustundir
Dyravarðanámskeið fyrir starfandi dyraverði og þá sem hyggjast starfa við dyravörslu. Námið hentar einnig starfsfólki á hótelum og veitingastöðum sem vinna næturvaktir. Kennsla fer fram á ensku.
Námskeiðið er haldið í samstarfi Mímis símenntunar, Reykjavíkurborgar og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og miðar að því að efla færni þátttakenda í starfi.
Meðal námsþátta eru ábyrgð og hlutverk dyravarða, brunavarnir, skyndihjálp, fjölmenning, sjálfsvörn og kynning á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis.
Þátttakendur sem ljúka námskeiðinu geta sótt um dyravarðaskírteini sem gildir í þrjú ár, að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum: að vera að minnsta kosti 20 ára og hafa hvorki fíkniefna- né ofbeldisbrot á sakaskrá síðastliðin fimm ár.
Félagsmenn Eflingar geta sótt um styrk fyrir námskeiðsgjaldi úr fræðslusjóði Eflingar.
Upplýsingar
Staðsetning: Mímir símenntun, Höfðabakka 9
Kennslutími: 16:30 - 21:30

