Fræðsluerindi, fundir og námskeið
Kennslutímabil: 9. mars 2026 – 6. maí 2026
Kennsludagar: Mánudagar og miðvikudagar
Kennslutími: 16:30 – 19:30
Lengd: Samtals 60 kennslustundir.
Ath. Kennslutíminn er til kl 20:00 þegar verkleg kennsla er.
Markmið námskeiðanna er að auka færni starfsfólks til þess að sinna störfum sínum í mötuneytum og eldhúsum. Áhersla er lögð á að auka faglega þekkingu á sviði matvæla- og veitingagreina og gefa fullorðnum tækifæri til fagmenntunar á sviðinu.
Á fagnámskeiði III er áhersla á matseðlagerð og matreiðslu á fæði fyrir fyrir grænkera/vegan.
Nám á fagnámskeiðunum er metið til eininga í námi í matvæla- og veitingagreinum, þar á meðal námi matsveina og matartækna.
Námskeiðin eru ætluð félagsmönnum Eflingar sem starfa í eldhúsum og mötuneytum og eru þeim að kostnaðarlausu.
Smellið á hnappinn hérna fyrir neðan til að skrá ykkur á námskeiðið. Ef þið þurfið aðstoð við skráninguna getið þið haft samband við Eflingu-stéttarfélag í síma 510 7500.
Upplýsingar
Menntaskólinn í Kópavogi, Digranesvegi 51
Klukkan 16:30 - 19:30

