Fræðsluerindi, fundir og námskeið

Kennslutímabil: 15. september - 17. desember 2026
Kennsludagar: Þriðjudagar, miðvikudagar, fimmtudagar og einn föstudagur í mánuði
Lengd: Samtals 191 Klukkustundir
Fagnámskeið fyrir starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu er ætlað Eflingarfélögum sem starfa við umönnun og sinna aðstoð, umönnun og stuðningi við sjúka, fatlaða og aldraða, bæði á heimilum og á stofnunum. Markmið námskeiðsins er að efla faglega færni þátttakenda og styrkja þá í daglegum störfum í heilbrigðis- og félagsþjónustu.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á hagnýta þekkingu sem nýtist í starfi. Meðal viðfangsefna eru aðstoð við athafnir daglegs lífs, samskipti, vinnustaðamenning og sjálfsstyrking. Auk þess verður sérstök áhersla lögð á lestur og hlustun á íslensku í þeim hluta námsins sem snýr að samskiptum á hjúkrunarheimilum.
Frá og með haustinu 2026 verður námið kennt sem eitt heildstætt námskeið. Áður var því skipt í Umönnun I og II, en nú er allt námið sameinað í eina námsleið.
Námið er ætlað einstaklingum sem:
- starfa við umönnun í heilbrigðis- og félagsþjónustu,
- eru 20 ára eða eldri,
- hafa ekki lokið formlegu framhaldsskólanámi.
Námið er kennt á íslensku og mælt er með að þátttakendur hafi íslenskukunnáttu að minnsta kosti á stigi A2 til B1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Þau sem eru óviss um stöðu sína í íslensku geta haft samband við Mími og fengið ráðgjöf um hvort stöðupróf henti áður en sótt er um.
Námsmat byggist á verkefnavinnu, verkefnaskilum, virkni í tímum og mætingu. Til að ljúka námskeiðinu og fá viðurkenningarskjal þurfa þátttakendur að ná að minnsta kosti 80% mætingu.
Námskeiðið er haldið í samstarfi Eflingar og Mímis símenntunar samkvæmt námskrá sem er vottuð af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Fyrir Eflingarfélaga sem starfa við fagið er námskeiðið að fullu greitt af starfsmenntasjóðum Eflingar. Við umsókn þarf að skrá greiðslukóðann efling15 og velja „Bæta greiðslukóða við umsókn“.
Upplýsingar
Staðsetning: Mímir símenntun, Höfðabakka 9
Kennslutími: 12:40 - 16:00

