Fræðsluerindi, fundir og námskeið
Kennslutímabil: 29. september - 9. desember 2026
Kennsludagar: Þriðjudagar, miðvikudagar og fimmtudagar
Lengd: Samtals 95 kennslustundir
Námskeiðið er ætlað Eflingarfélögum sem starfa við umönnun og sinna aðstoð, umönnun og stuðningi við sjúka, fatlaða og aldraða, bæði á heimilum og á stofnunum.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á hagnýta þekkingu sem nýtist í daglegum störfum í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Meðal viðfangsefna eru aðstoð við athafnir daglegs lífs, samskipti, vinnustaðamenning og sjálfstyrking.
Fagnámskeiðin eru haldin í samstarfi Eflingar og Mímis símenntunar og eru undirbúningur fyrir nám í félagsliðabrú. Námið er tvískipt og samanstanda fagnámskeið I og II af samtals 190 kennslustundum. Þátttakendur þurfa að ljúka fyrra námskeiðinu áður en þeir halda áfram á það seinna.
Námið er kennt á íslensku og mælt er með að þátttakendur hafi íslenskukunnáttu að minnsta kosti á stigi A2 til B1. Þau sem eru óviss um stöðu sína í íslensku geta haft samband við Mími og kannað hvort ókeypis stöðupróf eða ráðgjöf henti áður en sótt er um.
Námskeiðið er ókeypis fyrir Eflingarfélaga sem starfa hjá opinberum launagreiðendum, þar sem starfsmenntasjóðir Eflingar greiða námskeiðsgjaldið. Mikilvægt er við umsókn að settur sé inn greiðslukóðinn efling15 og smellt á „Bæta greiðslukóða við umsókn“.
Upplýsingar
Staðsetning: Mímir símenntun, Höfðabakka 9
Kennslutími: 12:40 - 16:00

