Yfirlýsing stjórnar Eflingar vegna Wolt sendla
Stjórn Eflingar lýsir yfir samstöðu með sendlum hjá fyrirtækinu Wolt sem sýndu mikið hugrekki með mótmælaaðgerðum í vikunni vegna bágra kjara. Störf sendla hjá Wolt og öðrum sambærilegum fyrirtækjum eru launavinna. Laun og réttindi eiga því að vera í samræmi við íslenska kjarasamninga. Efling fordæmir það að verkafólk sé svikið um lágmarkskjör og þess í stað látið vinna undir skilmálum gerviverktöku.
Efling hefur á síðastliðnum misserum átt í samskiptum við Wolt sendla á Íslandi sem leitað hafa til félagsins. Jafnframt hefur félagið kynnt sér baráttu stéttarfélaga og sendla á Norðurlöndum gagnvart sendlafyrirtækjum, meðal annars í Noregi og í Finnlandi. Félagið er tilbúið að styðja baráttu Wolt sendla á Íslandi fyrir bættum kjörum og vill beita sér fyrir viðurkenningu á stöðu þeirra sem launamanna.
Wolt sendlum er velkomið að hafa samband við félagið með því að senda tölvupóst á netfangið
efling@efling.is.



