
ASÍ og BSRB halda opinn fund um almenna íbúðakerfið
Verkalýðshreyfingin hefur í gegnum tíðina lagt ríka áherslu á húsnæðisöryggi launafólks og verið virkur þátttakandi í uppbyggingu og umræðu um húsnæðismál. Samtökin eiga húsnæðissjálfseignarstofnunina Bjarg íbúðafélag fyrir félaga í aðildarfélögum sínum. Bjarg er burðarás í almenna íbúðakerfinu og hefur frá 2016 byggt yfir 1.000 íbúðir fyrir tekjulágt launafólk.
ASÍ og BSRB halda opinn fund um almenna íbúðakerfið og ábyrgð sveitarfélaganna í húsnæðisuppbyggingu í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Fundurinn fer fram þriðjudaginn 28. apríl kl. 9.00 – 10.30 í Eddu og í streymi. Á fundinum verður m.a. kynnt ný greining samtakanna um félagslegt húsnæði og þróun almenna íbúðakerfisins. Meðal þess sem þar kemur fram er að um aldamótin síðustu voru um 7.000 íbúðir í verkamannabústaðakerfinu eða um 7% íbúða í landinu. Verkamannabústaðakerfið var lagt niður í kringum aldamót og við tók markaðsvæðing húsnæðisöryggis láglaunafólks.
Frá því almenna íbúðakerfinu var komið á fyrir 10 árum hafa 1.100 íbúðir verið byggðar fyrir láglaunafólk sem samsvarar innan við 0,7% íbúða í landinu. Félagslegar lausnir í húsnæðismálum vinnandi fólks hafa því verulega gefið eftir og óhætt er að segja að stjórnvöld hafi gjörsamlega brugðist. Fjölgun almennra íbúða fyrir vinnandi fólk er því eitt brýnasta verkefni þeirra sem verða kosin í sveitarstjórnir þann 16. maí nk.
Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaganna í húsnæðisuppbyggingu
Opinn fundur ASÍ og BSRB í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga
Þriðjudaginn 28. apríl kl. 9.00-10.30 í Eddu, Arnfinnsgötu 5
Boðið verður upp á morgunhressingu frá kl. 8.30
Streymt verður frá fundinum hér
Dagskrá:
8:30 Húsið opnar
9:00 Opnunarávarp - Finnbjörn A Hermannsson, forseti ASÍ
9:05 Saga og tilurð almenna íbúðakerfisins og Bjargs íbúðafélags - Myndband
9:10 Kynning á nýrri greiningu um félagslegt húsnæði og almenna íbúðakerfið
Róbert Farestveit hagfræðingur ASÍ og Jana Víglundsdóttir hagfræðingur BSRB
9:30 Saga íbúa í Bjargi - Myndband
9:35 Húsnæðisstefnu stjórnvalda og hlutverk sveitarfélaga
Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri HMS
9:50 Saga íbúa í Bjargi - Myndband
9:55 Pallborðsumræður
Dagur B Eggertsson, formaður aðgerðahóps stjórnvalda í húsnæðismálum
Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og stjórnarmaður í Bjargi
Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags
10:30 Fundarslit
Fundarstjóri er Brynja Þorgeirsdóttir
Nánari upplýsingar veita: Henný Hinz, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ s. 663-9026 og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB s. 895-0272



