Formaður Eflingar fundaði með Átaki
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, fundaði í dag með Jónínu Rósu Hjartardóttur, formanni
Átaks, félags fólks með þroskahömlun, og Heiðu Vigdísi Sigfúsdóttur, framkvæmdastjóra félagsins.
Á fundinum var meðal annars rætt um atvinnumöguleika félagsfólks Átaks. Einnig var rætt um mögulegt samstarf Eflingar og Átaks um vitundarvakningu um réttindi fólks með þroskahömlun á íslenskum vinnumarkaði.
Þá var rædd sú hugmynd að setja upp sérstakan flipa á vefsíðu Eflingar með efni á auðlesnu máli, enda eiga allir rétt á upplýsingum á máli sem þeir skilja.
Sólveig Anna segir fundinn hafa verið afar gagnlegan og skemmtilegan og kveðst vonast eftir góðu samstarfi við Átak.
Hægt er að nálgast upplýsingar um Átak og þeirra starf á heimasíðunni: https://okkaratak.is/
