Efling býður til fjölskylduskemmtunar í Hvalasafninu á baráttudegi verkalýðsins - Uppselt!

Dagsetning

16. apríl 2026

deila

Athugið! Uppselt er á fjölskylduhátíð Eflingar á baráttudegi verkalýsðins, 1. maí. Þeir Eflingarfélagar sem keypt hafa miða eru vinsamlega minntir á að koma og sækja armbönd sem gilda sem aðgöngumiði að hátíðinni fyrir 30. apríl .

Efling stéttarfélag blæs til mikillar fjölskylduhátíðar fyrir félagsfólk sitt á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí næstkomandi. Hátíðin verður haldin í Hvalasafninu/Whales of Iceland að Fiskislóð 23-25 í Reykjavík og hefst klukkan 15:00, að lokinni kröfugöngu og útifundi í miðborginni. 


Boðið verður upp á fjölbreytt úrval veitinga en eftirfarandi veitingar verða í boði:


  • Pítsur
  • Hamborgarar
  • DonsDonuts kleinuhringir
  • Ís
  • Kandífloss
  • Popp
  • Kaffi og kökur 


Þá verður skemmtunin ekki af verri endanum. Hér að neðan má sjá það helsta en upptalningin er þó alls ekki tæmandi:


  • Dj Sunna Ben heldur uppi stuðinu
  • Lúðrasveit verkalýðsins spilar fyrir gesti
  • Ótrúleg sirkusatriði
  • Blaðrarinn kemur og blaðrar
  • Andlitsmálning fyrir börnin
  • Myndabás 


Miðinn á fjölskylduskemmtunina kostar aðeins 500 krónur og allt er innifalið í verði. Hver Eflingarfélagi getur keypt allt að fimm miða. Miðasala fer fram í vefverslun Eflingar á Mínum síðum og hefst 17. apríl. Sækja þarf armbönd sem veita aðgang að skemmtuninni á skrifstofu Eflingar í Guðrúnartúni 1, fyrir 30. apríl. Fyrstir koma, fyrstir fá.



Eftir Sunna Björg Gunnarsdóttir • 19. október 2026
Wolt couriers met at Efling's offices today
Eftir Sunna Björg Gunnarsdóttir • 19. október 2026
Sendlar Wolt komu saman í félagsheimili Eflingar í dag
Eftir Sunna Björg Gunnarsdóttir • 19. október 2026
State tightens requirements for cleaning tenders
Sýna fleiri fréttir