
Efling fagnar frumvarpi um leigubremsu
Stjórnvöld hafa lagt fram frumvarp um hömlur á hækkanir leigu, bæði fyrir íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði. Frumvarpið markar tímamót í reglun leigumarkaðarins á Íslandi sem hefur verið í algjörum ólestri, með óhóflegum hækkunum og miklu óöryggi leigjenda.
Efling hefur lengi barist fyrir innleiðingu á leigubremsu og lagði stjórn Eflingar útfærðar tillögur fyrir stjórnvöld síðastliðið vor.
Hið nýja frumvarp kemur að verulegu leyti til móts við þær tillögur Eflingar.
Helstu nýmælin eru eftirfarandi:
- Mánaðarlegar hækkanir eru bannaðar. Minnst 12 mánuðir þurfa að líða milli hækkana, sem þurfa að vera samningsbundnar.
- Árlegar hækkanir mega ekki verða meiri en hækkun verðlagsvísitölunnar, en leiga íbúðarhúsnæðis hefur hækkað mjög langt umfram almennt verðlag hér á landi á síðustu 10-15 árum. Þannig eru settar hömlur á einn af stærstu drifkröftum verðbólgunnar.
- Sett eru viðmið um svigrúm til hækkana á leigu við upphaf og endurnýjun leigusamninga og tekið fyrir margþættar verðhækkanir á sama tíma.
- Birtar verða reglulega viðmiðunartölur um markaðsverð á leigu eftir gerðum húsnæðis og staðsetningu sem verða leiðbeinandi við samninga um leiguverð.
- Öryggi og neytendavernd leigjenda verða efld.
Efling hefði viljað ganga enn lengra, t.d. með því að miða þak á árlegar hækkanir leigu við verðlagsvísitölu án húsnæðisliðarins, sem hefði hægt meira á verðbólgunni, en frumvarpið miðar við almenna vísitölu neysluverðs. Þakið verður samt afar mikilvægt því leiga hefur hækkað langt umfram almennt verðlag á síðustu 10-15 árum.
Með frumvarpinu er í senn bættur hagur leigjenda svo um munar og um leið eru settar hömlur á mikilvægan þátt sem hefur magnað upp verðbólguna hér á landi á síðustu árum.
Mikilvægt er að frumvarpið fái skjóta afgreiðslu og komi til framkvæmda sem fyrst.




