
Placeholder for Your Post Subtitle
Placeholder for Your Post Content. This is where the content for your blog post goes. To add widgets and customise the text and images for individual posts, go to Manage Posts. From there, you can edit an existing post or add a new one.

Boðað er til sameiginlegs félags- og trúnaðarráðsfundar í Eflingu stéttarfélagi miðvikudaginn 5. mars næstkomandi. Fundurinn verður haldinn í Fosshoteli Reykjavík, Þórunnartún 1, í salnum Gullfoss og hefst klukkan 18:00.
Húsið opnar klukkan 17:30 með veitingum. Að venju verður textatúlkun milli íslensku og ensku á skjá.
Fundurinn er helgaður samstöðu með ræstingafólki í Eflingu. Ræstingafólk innan Eflingar er því boðið sérstaklega velkomið á fundinn og hvatt til að fjölmenna.
Farið verður yfir þá alvarlegu stöðu sem ríkir í málefnum ræstingarfólks og helstu aðgerðir félagsins vegna fregna um óásættanlegar launalækkanir hjá starfsfólki sumra ræstingafyrirtækja.
Dagskrá:
- Staða ræstingafólks innan félagsins. Umræður.
- Fregnir úr starfi félagsins.
- Önnur mál.
Áætlað er að fundi verði lokið fyrir klukkan 20:00.
Allir félagsmenn eru velkomnir á fundinn en ræstingafólk er sérstaklega hvatt til að mæta. Þau sem vilja skrá sig á fundinn eru beðin um að staðfesta komu hér fyrir neðan:

