Nýr sérkjarasamningur hafnarverkamanna hjá Eimskipum undirritaður

Placeholder for Your Post Subtitle

Placeholder for Your Post Content. This is where the content for your blog post goes. To add widgets and customise the text and images for individual posts, go to Manage Posts. From there, you can edit an existing post or add a new one.

Date

2025-05-23

share

Samninganefnd Eflingar og fulltrúar Eimskipa undirrituðu í fyrradag, 21. maí, sérkjarasamning vegna hafnarverkamanna sem starfa hjá Eimskipum. Samningurinn kemur í framhaldi af sérkjarasamningi bílstjóra hjá Eimskipum sem undirritaður var í lok síðasta mánaðar.  

Vinna að kröfugerð hófst seint á síðasta ári með þátttöku trúnaðarmanna og annarra Eflingarfélaga úr röðum bílstjóra og hafnarverkamanna sem starfa hjá Eimskipum. Samningaviðræður hafa staðið um all nokkra hríð en hafa nú skilað þessum árangri. 

Margt er áþekkt með samningunum tveimur. Þannig var samið um að forgangsákvæði í samningi hafnarverkamanna nái líka til yfirvinnu, rétt eins og í samningi bílstjóra. Þá var samið um að starfsmönnum verði lagðir til öryggisskór og annar hlífðarbúnaður sem þarf af öryggisástæðum eftir þörfum og að þeim að kostnaðarlausu.

Röðun í launaflokka hækkar um tvo launaflokka hjá öllum starfsmönnum með nýja samningnum. Starfsstöðvarálög, sem ekki höfðu tekið hækkunum frá árinu 2022, hækka um rúm 25% afturvirkt frá 1. febrúar 2024 og um 3,5% afturvirkt frá 1. janúar 2025.