
Placeholder for Your Post Subtitle
Placeholder for Your Post Content. This is where the content for your blog post goes. To add widgets and customise the text and images for individual posts, go to Manage Posts. From there, you can edit an existing post or add a new one.
Fyrr í haust stóð Efling fyrir hinum árlega skemmtiviðburði félagsins, Mat og menningu. Hátíðin var nú haldin þriðja árið í röð og hefur aldrei verið stærri eða veglegri. Var brugðið á það ráð að færa hátíðina í Iðnó í þetta sinn, sökum þess að hún hafði sprengt utan af sér húsakynni Félagsheimilis Eflingar, þar sem hún var haldin fyrri tvö árin.
Skemmst er að segja frá því að hátíðin heppnaðist frábærlega. Eflingarfélagar frá yfir 20 löndum buðu upp á veislurétti frá sínum upprunalöndum. Á hátíðinni var einnig boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem Eflingarfélagar og fjölskyldur þeirra tróðu upp. Spilað var á hljóðfæri, sungið og dansað.
Birgir Ísleifur Gunnarsson, ljósmyndari, kom og myndaði viðburðinn. Efling hefur nú fengið mikinn fjölda mynda frá Birgi og má sjá úrval þeirra hér að neðan.
































