
Opnað fyrir vetrarleigu orlofshúsa Eflingar
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Nú hefur verið opnað fyrir bókanir á orlofshúsum Eflingar fyrir vetrartímabilið 2025–2026. Eflingar félagar geta bókað hús á Mínum síðum á vefsíðu Eflingar.
Mikil eftirspurn er eftir orlofshúsunum yfir veturinn, sérstaklega þeim sem eru nálægt höfuðborgarsvæðinu, og því er mikilvægt að bóka tímanlega til að tryggja sér leigu á húsi á æskilegum tíma.
Vetrartímabilið:
- 29. ágúst 2025 – 29. maí 2026
- Hægt er að bóka bæði helgar- og vikuleigu.
Bókanir orlofshúsa frá jólum:
- Opnað fyrir bókanir um jól og áramót: 12. september kl. 8:00
- Opnað fyrir bókanir eftir áramót: 3. nóvember kl. 8:00
- Tilkynnt verður síðar um opnun bókana fyrir páskana 2026
Athugið:
- Orlofshúsin í Ölfusborgum verða lokuð fram í desember vegna framkvæmda við hitaveitu á svæðinu.
- Orlofshúsin í Flókalundi verða opin til helgarleigu fram til 20. október. Eftir það verður lokað fyrir bókanir yfir vetrartímann.

