Opnað fyrir vetrarleigu orlofshúsa Eflingar

Placeholder for Your Post Subtitle

Placeholder for Your Post Content. This is where the content for your blog post goes. To add widgets and customise the text and images for individual posts, go to Manage Posts. From there, you can edit an existing post or add a new one.

Date

2025-08-14

share

Nú hefur verið opnað fyrir bókanir á orlofshúsum Eflingar fyrir vetrartímabilið 2025–2026. Eflingar félagar geta bókað hús á Mínum síðum á vefsíðu Eflingar.

Mikil eftirspurn er eftir orlofshúsunum yfir veturinn, sérstaklega þeim sem eru nálægt höfuðborgarsvæðinu, og því er mikilvægt að bóka tímanlega til að tryggja sér leigu á húsi á æskilegum tíma.

Vetrartímabilið:

  • 29. ágúst 2025 – 29. maí 2026
  • Hægt er að bóka bæði helgar- og vikuleigu.

Bókanir orlofshúsa frá jólum:

  • Opnað fyrir bókanir um jól og áramót: 12. september kl. 8:00
  • Opnað fyrir bókanir eftir áramót: 3. nóvember kl. 8:00
  • Tilkynnt verður síðar um opnun bókana fyrir páskana 2026

Athugið:

  • Orlofshúsin í Ölfusborgum verða lokuð fram í desember vegna framkvæmda við hitaveitu á svæðinu.
  • Orlofshúsin í Flókalundi verða opin til helgarleigu fram til 20. október. Eftir það verður lokað fyrir bókanir yfir vetrartímann.