Kótilettukvöld öryggisvarða, 17. nóvember 2026

Dagsetning

9. nóvember 2026

deila

Efling heldur kótilettukvöld fyrir félagsmenn hjá öryggisfyrirtækjum þann 17. nóvember. Dagskrá kvöldsins verður blanda af gríni, gítar, góðum mat og norrænni verkalýðsbaráttu. Veislustjórn verður í höndum Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar. Uppistandarinn Andri Ívars sér um grínið og mun leika ljúfa tóna á gítar af sinni alkunnu snilld.

Góðir gestir segja frá störfum og kjarabaráttu öryggisvarða í Noregi


Stian Tveitan er aðaltrúnaðarmaður Norsk Arbeidsmandsforbund hjá Securitas í Noregi og situr jafnframt í stjórn fyrirtækisins fyrir hönd starfsmanna. Til viðbótar við þetta er hann formaður evrópska samstarfsráðsins hjá Securitas sem kemur fram fyrir hönd starfsfólks Securitas í þeim löndum ESB og EES þar sem fyrirtækið starfar. Stian mun ræða um þátttöku sína í kjarabaráttu öryggisvarða og hvað hefur áunnist á undanförnum árum í Noregi.

Frank Aamo starfar sem öryggisvörður á flugvellinum í Þrándheimi og er jafnframt aðaltrúnaðarmaður Norsk Arbeidsmandsforbund hjá Avarn Security í Noregi. Avarn er ásamt Securitas annað af tveimur stærstu öryggisfyrirtækjunum þar í landi. Frank mun segja frá störfum sínum sem aðaltrúnaðarmaður og því mikilvæga hlutverki sem virkir félagsmenn gegna í kjarasamningsgerð við stór fyrirtæki eins og Avarn.

Matseðill

Dásamlegar lambakótilettur með öllu tilheyrandi meðlæti og marenstertu með berjum í eftirrétt.

Miðasala í fullum gangi!

Miðasala er á Mínum síðum Eflingar undir flipanum vefverslun.

Miðinn kostar 1500 kr.

Hámark 2 miðar fyrir hvern félagsmann. Tilvalið að bjóða vinnufélaga.

Hvenær: 17. nóvember 2026, kl. 18. (Húsið opnar 17:30)
Hvar:
Félagsheimili Eflingar, 4. hæð, Guðrúnartúni 1.

Eftir Sigrún Efling • 9. nóvember 2026
Efling is holding a lamb chop night for members who work for security companies on November 17th. The evening will be a mix of comedy, guitar, good food and Nordic union solidarity. Efling’s chair, Sólveig Anna Jónsdóttir , will host the evening. Comedian Andri Ívars will bring the laughs and play some mellow guitar tunes with his well-known flair.
Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Efling’s autumn education programme is off to a strong start, with registrations exceeding expectations. Members have already had the opportunity to learn about their rights as tenants and employees. Tonight, 28 October, the focus turns to job searching and career development. The programme aims to help members understand their rights and make the most of the opportunities available to them.
Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Fræðsludagskrá haustsins hjá Eflingu er komin vel af stað og skráning hefur verið framar vonum. Félagsfólk hefur þegar getað fræðst um réttindi sín á leigu- og vinnumarkaði og í kvöld, 28. október, verður fjallað um atvinnuleit og starfsþróun. Markmiðið með fræðslunni er að félagsfólk þekki réttindi sín og viti hvaða möguleikar standa því til boða.
Sýna fleiri fréttir