Fræðslustarf Eflingar fer vel af stað
Fræðsludagskrá haustsins hjá Eflingu er komin vel af stað og skráning hefur verið framar vonum. Félagsfólk hefur þegar getað fræðst um réttindi sín á leigu- og vinnumarkaði og í kvöld, 28. október, verður fjallað um atvinnuleit og starfsþróun. Markmiðið með fræðslunni er að félagsfólk þekki réttindi sín og viti hvaða möguleikar standa því til boða.

Réttindi leigjenda
13. október s.l. kom Jóhann Einarsson frá Leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna í heimsókn og ræddi við félagsfólk um réttindi leigjenda. Hann fór meðal annars yfir leigusamninga, tryggingarfé, viðhald húsnæðis og leiguhækkanir og svaraði spurningum úr sal. Einnig benti hann á hvert hægt er að leita þegar aðstoðar er þörf. Þessar upplýsingar geta komið sér vel áður en skrifað er undir leigusamning og ekki síður ef upp kemur ágreiningur við leigusala.

Vinna, laun og réttindi
Þessa dagana stendur yfir námskeiðið
Vinna, laun og réttindi
á vegum vinnuréttindasviðs Eflingar. Það er haldið annars vegar fyrir félagsfólk á almennum vinnumarkaði og hins vegar á opinberum vinnumarkaði. Sérfræðingar Eflingar fara yfir helstu ákvæði kjarasamninga og útskýra hvernig þau eiga við í daglegu starfi. Meðal umfjöllunarefna eru laun og álagsgreiðslur, vinnutími, veikindaréttur og orlof, auk ráðningarsamninga og launaseðla. Þessi þekking hjálpar félagsfólki að sjá hvort það fær rétt greitt og leita réttar síns ef svo er ekki.

Námskeiðið fyrir almenna vinnumarkaðinn fór fram á ensku með íslenskri túlkun þriðjudaginn 27. október og verður haldið á pólsku miðvikudaginn 11. nóvember. Námskeiðið fyrir opinbera vinnumarkaðinn verður haldið á ensku með íslenskri túlkun þriðjudaginn 3. nóvember og á pólsku miðvikudaginn 4. nóvember.
Í kvöld: Atvinnuleit og starfsþróun
Í kvöld, miðvikudaginn 28. október, kemur Kristín Erla Þráinsdóttir, fagstjóri ráðgjafar og raunfærnimats hjá Mími, til Eflingar. Hún gefur góð ráð um gerð ferilskrár og kynningarbréfs, atvinnuleit og undirbúning fyrir atvinnuviðtöl. Hún fjallar líka um hvernig fólk getur áttað sig á eigin styrkleikum og komið reynslu sinni á framfæri þegar sótt er um nýtt starf.
Erindið hentar jafnt fólki í atvinnuleit og þeim sem velta fyrir sér breytingum í starfi eða námi. Einnig verður sagt frá náms- og starfsráðgjöf, raunfærnimati og þeim stuðningi sem Efling veitir til náms og starfsþróunar. Þátttakendur fá þannig hugmyndir að næstu skrefum og upplýsingar um hvert þeir geta leitað eftir aðstoð.
Dagskráin hefst klukkan 17:30 í félagsheimili Eflingar við Guðrúnartún 1, á 4. hæð, og fer fram á ensku með íslenskri túlkun. Þátttaka er félagsfólki að kostnaðarlausu og enn er hægt að skrá sig.
Fjölbreytt fræðsluár fram undan
Á starfsárinu verður einnig fjallað um starfslok, lífeyrisréttindi og skattkerfið. Þá bætist við nýtt erindi um launamál, annars vegar á almennum vinnumarkaði og hins vegar á opinberum vinnumarkaði. Erindið er undirbúið að ósk félagsfólks sem hefur kallað eftir meiri fræðslu um þessi mál. Þar verður farið nánar yfir launaseðla, launahækkanir og hvernig nám og starfsþróun geta verið metin til launa.
Efling leggur metnað í að velja efni sem félagsfólk hefur gagn af og fá til sín fólk sem þekkir málaflokkana vel og getur svarað spurningum. Félagsfólk er hvatt til að mæta og nýta sér fræðsluna, hvort sem það hefur ákveðna spurningu í huga eða vill einfaldlega kynna sér réttindi sín betur.
Dagskrá og skráningu má finna á vef Eflingar. Skráning á erindi vorannar hefst eftir áramót og því borgar sig að fylgjast vel með vefnum.




