
Ljósmyndasamkeppni Eflingar - Sendu þína mynd inn
Árlega efnir Efling stéttarfélag til ljósmyndasamkeppni á meðal félagsfólks. Þema keppninnar er frí innanlands, og því er kjörið að nýta sumarferðalagið eða sumarbústaðaferðina til að fanga augnablikið með myndavélinni.
Verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin:
- sætið: 50.000 kr gjafakort
- sætið: 25.000 kr gjafakort
- sætið: 25.000 kr gjafakort
Myndirnar skulu vera í góðum gæðum og ekki er heimilt að senda inn fleiri en þrjár myndir frá hverjum keppanda.
Skila þarf myndinni ásamt upplýsingum um nafn og símanúmer í tölvupósti á netfangið efling@efling.is með viðfangsefninu „Ljósmyndasamkeppni“.
Athugið að ljósmyndasamkeppnin er eingöngu ætluð félagsfólki Eflingar. Myndirnar verða notaðar á miðlum Eflingar og í orlofshúsum Eflingar.
Skilafrestur er 31. ágúst 2026.
Vinningshafar verða tilkynntir 17. september 2026.
Hér að neðan má sjá vinningsmyndina frá síðasta ári, mynd Agnieszku Górka, af lunda á Borgarfirði eystri.




