24. september 2026

Sigurvegarar ljósmyndasamkeppni Eflingar taka við verðlaunum

Dagsetning

24. september 2026

deila

Dómnefnd Eflingar komst á dögunum að niðurstöðu um úrslit í árlegri ljósmyndasamkeppni félagsins. Í frétt sem birt var á vefsíðu félagsins 18. september voru úrslitin kynnt og verðlaunamyndirnar birtar, ásamt þeim myndum sem fengu sérstaka heiðursviðurkenningu. Sjá má fréttina hér.


Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin voru afhent í gær. Verðlaunahafarnir komu í húsnæði Eflingar að Guðrúnartúni 1 til að taka við verðlaununum. Magdalena Kwiatkowska, aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Eflingar og dómnefndarmaður í keppninni, afhenti verðlaunin.


Hér að neðan má sjá Eflingarfélagana sem hlutu verðlaun, ásamt verðlaunamyndum þeirra.

Eftir Freyr Rögnvaldsson • 24. september 2026
The judging panel of Efling recently reached its decision on the winners of the union’s annual photography competition. The results were announced on Efling’s website on 18 September, along with the winning photographs and the photographs that received special recognition. Read the full story here. The prizes for the top three places were presented yesterday. The winners visited Efling’s offices at Guðrúnartún 1 to receive their prizes. Magdalena Kwiatkowska, Assistant to Efling’s Managing Director and a member of the judging panel, presented the prizes. Below are the Efling members who received prizes, along with their winning photographs.
Eftir Freyr Efling • 21. september 2026
Efling members can get free tickets to the album release concert of the band Grýbos at Tjarnarbíó on September 24. Tickets are free of charge and can be picked up at the reception desk at Efling Union’s office at Guðrúnartún 1, 3rd floor. There are only 25 tickets available, so members are encouraged to act quickly. Tickets are available on a first-come, first-served basis. Each Efling member can receive two tickets while supplies last. The concert is held to celebrate the release of the album Kemur í ljós. Grýbos is a musical project by brothers Alexander and Jakob Grybos, joined by Hlynur Sævarsson on bass, Magnús Már Newman on drums, and Guðjón Steinn on various instruments.  The concert starts at 8:00 p.m.
Eftir Freyr Efling • 21. september 2026
Eflingarfélögum bjóðast miðar á útgáfutónleika hljómsveitarinnar Grýbos í Tjarnarbíói 24. september næstkomandi. Miðarnir eru án endurgjalds og sækja þarf þá í afgreiðslu skrifstofu Eflingar stéttarfélags í Guðrúnartúni 1, 3. hæð. Miðarnir eru aðeins 25 talsins og því um að gera að hafa hraðar hendur. Fyrstur kemur, fyrstur fær. Hver Eflingarfélagi getur fengið tvo miða á meðan birgðir endast. Tónleikarnir eru, sem fyrr segir, útgáfutónleikar sem haldnir eru í tilefni af útgáfu plötunnar Kemur í ljós. Grýbos er tónlistarverkefni bræðranna Alexanders og Jakobs Grybos en með þeim spila Hlynur Sævarsson á bassa, Magnús Már Newman á trommur og Guðjón Steinn á hin ýmsu hljóðfæri.  Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00.
Sýna fleiri fréttir