
Starfsþróunarmál í brennidepli á norrænni ráðstefnu öryggisvarða
Sendinefnd frá Eflingu tók þátt í samnorrænni ráðstefnu stéttarfélaga öryggisvarða í Korpilampi í Finnlandi dagana 14.-17. september síðastliðinn. Á ráðstefnunni komu saman félagsmenn, trúnaðarmenn, starfsmenn og forystufólk úr félögunum, en þau eru öll aðilar að bandalaginu SUN. Geiraráðstefnur af þessu tagi eru haldnar annað hvert ár og skiptast aðildarfélögin á að hýsa þær.
Dagskrá hófst eftir hádegi á mánudegi með setningu og svokölluðum landsskýrslum, þar sem fulltrúar hvers félags fóru yfir stöðu efnahagsmála, kjaramála og stjórnmála í sínu landi. Á þriðjudeginum hófst dagskráin með kynningu á ítarlegri samanburðarkönnun á kjarasamningum öryggisvarða á Norðurlöndum. Efling átti veg og vanda af framkvæmd könnunarinnar, og var það starfsmaður Eflingar Eleonora Maximciuc sem flutti kynninguna.
Sama dag var einnig fjallað um tækniþróun í öryggisvörslugeiranum, þar á meðal notkun gervigreindar, auk þess sem þrír norrænir fræðimenn sem starfa við rannsóknir tengdar málefnum geirans fluttu erindi. Viðar Þorsteinsson sviðsstjóri fræðslu- og félagsmála hjá Eflingu stýrði pallborðsumræðum með fyrirlesurunum.
Á miðvikudeginum hófst dagskrá með kynningu frá Adam Fishwick, aðjúnkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, þar sem hann sagði frá rannsóknum sínum á endurnýjun stéttarfélaga (union renewal) en í rannsóknarverkefninu beinir hann sjónum sérstaklega að Eflingu. Að því búnu flutti Mark Bergfeld frá UNI Europa erindi í gegnum fjarfundabúnað um hagsmunagæslu öryggisvarða á Evrópuvettvangi. Síðdegis var farið í skoðunarferð um hið sögufræga virki Svíaborg (Sveaborg – Suomenlinna) rétt utan við Helsinki.
Dagskrá lauk fyrir hádegi á fimmtudegi með umfjöllun um skipulagið á þjálfun og vottun öryggisvarða á Norðurlöndum, þar sem hvert og eitt félag flutti ítarlega kynningu um þær kröfur sem gerðar eru um starfsþjálfun stéttarinnar í viðkomandi landi. Viðar Þorsteinsson og Sigrún Björg Guðmundsdóttir starfsmenntafulltrúi hjá Eflingu fluttu kynningu fyrir hönd Eflingar og tóku þátt í umræðum.
Í umfjöllun ráðstefnunnar um starfsmenntamál kom berlega í ljós hversu langt á undan Íslandi hinar Norðurlandaþjóðirnar eru í þeim málaflokki þegar kemur að störfum öryggisvarða. Á öllum Norðurlöndunum utan Íslands eru gerðar kröfur til öryggisvarða um tiltekna þjálfun og menntun, sem yfirleitt er að finna í lögum. Þá hafa aðilar vinnumarkaðarins unnið náið saman að útfærslu námsbrauta og viðurkenningar á þjálfun. Einna lengst hefur verið gengið í Svíþjóð, þar sem stéttarfélagið Transport hefur ásamt samtökum öryggisvarðafyrirtækja sett á fót öfluga stofnun, BYA, sem heldur utan um öll starfsmennamál og önnur fagleg mál geirans.
Fjöldi tækifæra gafst til samskipta og tenglamyndunar í hléum, sameiginlegum máltíðum og annarri óformlegri samveru. Óhætt er að segja að starfsmenn og forysta Eflingar hafi snúið heim af ráðstefnunni klyfjuð af fróðleik, samböndum og gagnlegum upplýsingum um fyrirmyndir þegar kemur að starfsþróunarmálum í öryggisvarðageiranum. Næsta verkefni félagsins er að byggja á þessari vinnu í samtölum við öryggisverði sjálfa, fyrirtæki þeirra, fræðsluaðila og hið opinbera.
Sendinefnd Eflingar á ráðstefnunni var skipuð eftirtöldum:
- Atli Antonsson, verkefnisstjóri í félagsmálum
- Eleonora Maximciuc, ráðgjafi í vinnuréttindum
- Sigrún Björg Guðmundsdóttir, starfsmenntafulltrúi
- Viðar Þorsteinsson, sviðsstjóri fræðslu- og félagsmálasviðs
- Þórir Jóhannesson, varaformaður Eflingar og trúnaðarmaður hafnarverkamanna hjá Samskip
Félögin sem áttu fulltrúa á ráðstefnunni til viðbótar við Eflingu voru þessi:
- Norsk arbeidsmandsforbund (NAF) frá Noregi. Félagið gerir einnig kjarasamninga fyrir ræstingafólk og hefur Efling einnig átt samstarf við ræstingadeild félagsins á vettvangi SUN.
- VSL frá Danmörku. Félagið semur eingöngu fyrir öryggisverði og er eina slíka félagið á Norðurlöndunum.
- PAM frá Finnlandi. Líkt og NAF semur PAM einnig fyrir ræstingafólk og er aðili að ræstingadeild SUN.
- Transportarbetareförbundet frá Svíþjóð, í daglegu tali kallað Transport. Félagið gerir kjarasamninga fyrir vörubílstjóra, hafnarverkamenn og fleiri stéttir í samgöngugeiranum.




