Efling stendur með grænlenskum félögum sínum

Dagsetning

23. janúar 2026

deila

Stjórn Eflingar stéttarfélags stendur þétt við hlið grænlenskra félaga sinna á þeim ólgutímum sem nú ríkja. Stjórnin samþykkti í gær ályktun með baráttukveðjum til félaga sinna í Sulinermik Inuussutissarsiuteqartut Kattuffiat, SIK, sem er landssamband grænlenskra stéttarfélaga. Í ályktuninni segir stjórn Eflingar að framtíð Grænlands skuli ákvörðuð af Grænlendinugum sjálfum, öðrum ekki. „Við munum mæta þessari ógn ásamt ykkur og gera það sem við gerum alltaf: Að standa saman og gefast aldrei upp.“


Ályktunin hefur verið send félögum okkar í SIK en hægt er að lesa hana hér að neðan.


Kæru grænlensku félagar í SIK!

Við lifum á hættulegum og ófyrirsjáanlegum tímum. Nú um stundir þekkja fáir það betur en Grænlendingar.


Bandaríkin og forseti þeirra, Donald Trump, hóta innrás Bandaríkjanna á grænlenskt landsvæði.


Við vitum ekki hverjar afleiðingar slíkra aðgerða yrðu.


Það gæti ekki aðeins leitt til missis sjálfsákvörðunarréttar Grænlands, heldur einnig til versnandi aðstæðna fyrir grænlenskt verkafólk.


Koma bandarískra fyrirtækja inn á grænlenskan markaði gæti leitt til veikari verndar launafólks, sem væri brotthvarf frá þeim sterku stéttarfélagshefðum sem við eigum sameiginlegar í norrænu samstarfi.


Við munum mæta þessari ógn ásamt ykkur og gera það sem við gerum alltaf: Að standa saman og gefast aldrei upp.


Framtíð Grænlands verður umfram allt að verða ákvörðuð af Grænlendingum sjálfum. Ekki af Bandaríkjunum og ekki af NATO.


Stjórn Eflingar stéttarfélags stendur þétt við hlið ykkar í þessari afar erfiðu stöðu og þið getið treyst á fullan stuðning okkar.


Fyrir frjálst Grænland með sterk réttindi launafólks!

Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Efling’s autumn education programme is off to a strong start, with registrations exceeding expectations. Members have already had the opportunity to learn about their rights as tenants and employees. Tonight, 28 October, the focus turns to job searching and career development. The programme aims to help members understand their rights and make the most of the opportunities available to them.
Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Fræðsludagskrá haustsins hjá Eflingu er komin vel af stað og skráning hefur verið framar vonum. Félagsfólk hefur þegar getað fræðst um réttindi sín á leigu- og vinnumarkaði og í kvöld, 28. október, verður fjallað um atvinnuleit og starfsþróun. Markmiðið með fræðslunni er að félagsfólk þekki réttindi sín og viti hvaða möguleikar standa því til boða.
Eftir Sunna Björg Gunnarsdóttir • 26. október 2026
Sólveig Anna Jónsdóttir, chair of Efling, met today with Jónína Rósa Hjartardóttir, chair of Átak, the association of people with intellectual disabilities , and Heiða Vigdís Sigfúsdóttir, the association’s managing director.
Sýna fleiri fréttir