
Placeholder for Your Post Subtitle
Placeholder for Your Post Content. This is where the content for your blog post goes. To add widgets and customise the text and images for individual posts, go to Manage Posts. From there, you can edit an existing post or add a new one.

Efling býður foreldrum sem eiga von á barni upp á námskeið þar sem farið verður yfir þær breytingar sem vitað er að bíður þeirra með tilkomu barns.
Á námskeiðinu verður meðal annars fjallað um:
- Að efla tilfinninga- og streitustjórnun
- Mikilvægi góðra og öruggra tengsla í fjölskyldunni
- Að efla nánd í parasambandinu
- Að vita hvert hægt sé að leita eftir stuðningi fyrstu árin
Námskeiðið er fyrir barnshafandi pör sem eiga von á sínu fyrsta barni saman og verður annað þeirra að vera greiðandi félagsmaður í Eflingu stéttarfélagi.
Námskeiðið er kennt á íslensku og ensku með textatúlkun á milli þessara tungumála og tvítyngdum glærum.
Heppilegur tími fyrir þátttöku er hvenær sem er á meðgöngu. Í lok seinni tímans verða pör leist út með óvæntum glaðningi.
Námskeiðið verður haldið í tvennu lagi laugardagana 29. mars og 12. apríl frá kl 10:00 – 15:30.
Námskeiðið fer fram í Fosshoteli Reykjavík við Þórunnartún 1. Í salnum Gullfossi B 29. mars og salnum Háafossi 12. apríl.
Boðið verður upp á morgun- og hádegis hressingu. Námskeiðsgjald er 2.500 kr. og annað foreldrið þarf að vera greiðandi félagsmaður í Eflingu.
Umsjón með námskeiðinu hafa:
Ólafur Grétar Gunnarsson, fjölskyldu- og hjónaráðgjafi
Gottman Bringing Baby Home & Seven Principles leiðbeinandi
Undanfarna áratugi hefur Ólafur Grétar sérhæft sig í fræðslu og ráðgjöf fyrir pör í barneignarferli. Einnig hefur hann sinnt fræðslu fyrir verðandi feður hjá Geðheilsumiðstöð barna og hjá Fæðingarheimili Reykjavíkur og greinarskrifum, m.a. fyrir Tímarit Geðverndarfélags Íslands. Áður hafði hann unnið á leikskólum erlendis og hérlendis. Ólafur er með stofu í Samskiptastöðinni, Skeifunni 11, Reykjavík.
Margrét Gunnarsdóttir, sálmeðferðarfræðingur MSc og geðsjúkraþjálfari
Sérfræðingur í tengslaeflandi meðferð og áfallameðferð
Margrét vann lengi sem sjúkraþjálfari en bætti síðan við sig námi í sálrænni meðferð með áherslu á tengsla- og áfallameðferð. Hún hefur unnið á eigin stofu undanfarin ár, bæði með einstaklingum og hópum ásamt því að halda námskeið og sinna kennslu. Um tíma vann hún á Miðstöð foreldra og barna (nú Geðheilsumiðstöð barna HH) og sinnti þar sérhæfðri ráðgjöf fyrir verðandi foreldra og foreldra barna á fyrsta ári. Margrét er nú með stofu í Grænuhlíð- fjölskyldumiðstöð, Sundagörðum 2, Reykjavík.
Ásamt Írisi Dögg Jóhannesdóttur aðst. leikskólastjóra og HighScope kennara

