
Placeholder for Your Post Subtitle
Placeholder for Your Post Content. This is where the content for your blog post goes. To add widgets and customise the text and images for individual posts, go to Manage Posts. From there, you can edit an existing post or add a new one.

Athugið: Uppselt er á Fjölskylduskemmtun Eflingar í Hvalasafninu. Sækja verður keypta miða á skrifstofu Eflingar í síðasta lagi miðvikudaginn 30. apríl þar sem skrifstofa Eflingar er lokuð fimmtudaginn 1. maí.
Á baráttudegi verkalýðsins, þann 1. maí fer ganga frá Skólavörðuholti og niður á Ingólfstorg þar sem haldinn verður útifundur. Að því loknu mun Efling stéttarfélag blása til heljarinnar fjölskylduhátíðar í Hvalasafninu fyrir félagsfólk Eflingar og fjölskyldur þeirra.
Ganga og útifundur:
13:00 Safnast saman á Skólavörðuholti.
13:30 Gangan hefst og fer niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila á Skólavörðuholti og síðan í göngunni niður á Ingólfstorg.
14:00 Útifundur hefst á Ingólfstorgi.
- Fundarstýra er Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir sviðshöfundur og listakona og Margrét Pétursdóttir mun táknmálstúlka. Dagskráin verður jafnframt textatúlkuð á ensku.
- Ræðu flytja Karla Esperanza Barralaga Ocón starfskona í umönnun, trúnaðarmaður og stjórnarmaður í Eflingu og Jóhanna Bárðardóttir rafveituvirki, rafvirki og trúnaðarmaður RSÍ.
- Mammaðín og Una Torfa munu taka lagið og í lok fundarins verður samsöngur.
Fjölskylduskemmtun Eflingar í Hvalasafninu:
15:00-17:00 Fjölskylduhátíð Eflingar í Hvalasafninu/Whales of Iceland í Fiskislóð 23-25, 101 Reykjavík.
Í boði verður:
- Pizzuvagn, hamborgaravagn, DonsDonuts kleinuhringjavagn 🍕🍔🍩
- Ísvagn 🍧
- Kandífloss og popp 🍭🍿
- Kaffi og kökur ☕ 🧁
- Dj Sunna Ben verður á staðnum 🎶🪩
- Lúðrasveit kemur og spilar🎺🥁
- Börn geta fengið andlitsmálningu 🤩
- Sirkus bregður á leik 🎪🤡
- Myndabás (photo booth) 📸
- …og fleira!
Miðinn á fjölskylduskemmtunina kostar aðeins 500 kr og allt er innifalið í verði. Hver Eflingarfélagi getur keypt allt að fimm miða. Miðasala fer fram á vefverslun Eflingar á Mínum Síðum.
Athugið: Uppselt er á Fjölskylduskemmtun Eflingar í Hvalasafninu. Sækja verður keypta miða fyrir Fjölskylduskemmtun Eflingar í Hvalasafninu á skrifstofu Eflingar í síðasta lagi 30. apríl.

