Kjarasamningsbundnar launahækkanir í janúar

Dagsetning

29. janúar 2026

deila

Hinn 1. janúar síðastliðinn hækkuðu laun Eflingarfélaga sem starfa á almennum vinnumarkaði, hjá hótelum og veitingahúsum og hjá ræstingafólki, samkvæmt kjarasamningum. Launahækkunin kemur til útborgunar 1. febrúar næstkomandi. Er Eflingarfélögum bent á að fara vel yfir launaseðla sína og tryggja að launahækkanir hafi skilað sér. Ef meinbugir eru þar á er mikilvægt að gera atvinnurekanda þegar viðvart og fara fram á tafarlausa leiðréttingu. Starfsfólk Eflingar er boðið og búið til að aðstoða félaga ef þörf krefur í þessum efnum. 


Starfsfólk á almennum vinnumarkaði 


Föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu skulu hækka um 3,5%, en þó aldrei minna en um 23.750 krónur, nema að annað leiði af launatöflum sem fylgja kjarasamningi. 


Kjaratengdir liðir kjarasamningsins hækka um 3,5%, nema að um annað hafi verið samið. 


Sjá launatöflu starfsfólks á almennum vinnumarkaði


Starfsfólk hótela og veitingahúsa 


Föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu skulu hækka um 3,5%, eða að lágmarki um 24.026 krónur (launaflokkur 6, byrjunarlaun). 



Kjaratengdir liðir kjarasamningsin hækka um 3,5%, nema að um annað hafi verið samið. 


Sjá launatöflu starfsfólks hótela og veitingahúsa 


Launahækkanir hjá ræstingafólki 


Föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu skulu hækka um 3,5%, eða að lágmarki um 24.306 krónur (launaflokkur 8, byrjunarlaun). 


Sjá launatöflu starfsfólks í ræstingum

Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Efling’s autumn education programme is off to a strong start, with registrations exceeding expectations. Members have already had the opportunity to learn about their rights as tenants and employees. Tonight, 28 October, the focus turns to job searching and career development. The programme aims to help members understand their rights and make the most of the opportunities available to them.
Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Fræðsludagskrá haustsins hjá Eflingu er komin vel af stað og skráning hefur verið framar vonum. Félagsfólk hefur þegar getað fræðst um réttindi sín á leigu- og vinnumarkaði og í kvöld, 28. október, verður fjallað um atvinnuleit og starfsþróun. Markmiðið með fræðslunni er að félagsfólk þekki réttindi sín og viti hvaða möguleikar standa því til boða.
Eftir Sunna Björg Gunnarsdóttir • 26. október 2026
Sólveig Anna Jónsdóttir, chair of Efling, met today with Jónína Rósa Hjartardóttir, chair of Átak, the association of people with intellectual disabilities , and Heiða Vigdís Sigfúsdóttir, the association’s managing director.
Sýna fleiri fréttir