Mundu eftir orlofsuppbótinni!

Dagsetning

27. maí 2026

deila

Efling stéttarfélag vekur athygli félagsfólks á því að samkvæmt flestum kjarasamningum skulu vinnuveitendur greiða orlofsuppbót 1. júní næstkomandi til viðbótar við regluleg laun. 


Eru félagsmenn því hvattir til að veita því sérstaka athygli hvort sú greiðsla skili sér ekki örugglega í næstu útgreiðslu launa, með því að fara yfir launaseðil sinn af kostgæfni. Leiki vafi á að orlofsuppbót hafi verið rétt greidd út eða aðrar spurningar vakna er félagsfólki bent á að hafa samband við trúnaðarmenn á vinnustöðum sínum, eða stéttarfélagið sjálft. 


Orlofsuppbót er föst fjárhæð og orlof reiknast ekki ofan á hana. Uppbótin er greidd miðað við starfshlutfall og starfstíma. Orlofsuppbót á að gera upp, komi til starfsloka. 


Hér má finna reiknivél Eflingar fyrir orlofsuppbót. Með henni getur félagsfólk reiknað út orlofsuppbót sína á einfaldan og skjótan máta. Hægt er að stilla reiknivélina eftir mismunandi kjarasamningum, þar á meðal kjarasamningum fyrir almenna vinnumarkaðinn (SA), hótel og veitingahús, Reykjavíkurborg, ríkið, önnur sveitarfélög sem og hjúkrunarheimili (SFV). Upphæðin er reiknuð miðað við orlofsárið 2026, sem nær frá 1. maí 2025 til 30. apríl 2026. 




Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Efling’s autumn education programme is off to a strong start, with registrations exceeding expectations. Members have already had the opportunity to learn about their rights as tenants and employees. Tonight, 28 October, the focus turns to job searching and career development. The programme aims to help members understand their rights and make the most of the opportunities available to them.
Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Fræðsludagskrá haustsins hjá Eflingu er komin vel af stað og skráning hefur verið framar vonum. Félagsfólk hefur þegar getað fræðst um réttindi sín á leigu- og vinnumarkaði og í kvöld, 28. október, verður fjallað um atvinnuleit og starfsþróun. Markmiðið með fræðslunni er að félagsfólk þekki réttindi sín og viti hvaða möguleikar standa því til boða.
Eftir Sunna Björg Gunnarsdóttir • 26. október 2026
Sólveig Anna Jónsdóttir, chair of Efling, met today with Jónína Rósa Hjartardóttir, chair of Átak, the association of people with intellectual disabilities , and Heiða Vigdís Sigfúsdóttir, the association’s managing director.
Sýna fleiri fréttir