17. ágúst 2026

Opnun á vetrarleigu orlofshúsa Eflingar frestast til föstudagsins 21. ágúst

Dagsetning

17. ágúst 2026

deila

Af óviðráðanlegum orsökum hefur þurft að fresta opnun á bókunum fyrir orlofshús Eflingar fyrrihluta komandi vetrar. Til stóð að hægt yrði að byrja að bóka á morgun, 18. ágúst, en því miður er nauðsynlegt að fresta opnunni til föstudagsins 21. ágúst. Efling biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.


Á föstudag geta Eflingarfélagar farið inn á Mínar síður á vefsíðu Eflingar og bókað orlofshús. Leigutímabilið sem um ræðir er frá 28. ágúst-21. desember 2026, og bæði er hægt að bóka helgar- og vikuleigu. 


Mikil eftirspurn er alla jafna eftir orlofshúsum félagsins yfir vetrartímann, ekki síst þeim húsum sem eru skammt frá höfuðborgarsvæðinu. Því er vænlegt að bóka tímanlega.


Opnað verður fyrir bókanir orlofshúsa yfir jól og áramót 11. september næstkomandi. Tímabilin sem þar er um að ræða eru frá 22.-29. desember og 29. desember-5. janúar. Aðeins er hægt að leigja orlofshús í viku í senn yfir hátíðarnar.


Þá verður opnað fyrir bókunartímabilið 5. janúar-27. maí 2027 að morgni 2. nóvember næstkomandi. Umsóknartímabil fyrir páska verður auglýst síðar. 


Eftir Sigrún Efling • 30. september 2026
The Food and Culture festival took place at Efling’s community centre on Sunday, September 27, for the fourth time.  Efling members invited guests to discover the food traditions of their home countries. A wide variety of dishes prepared by members gave guests the chance to travel around the world through food. These included Filipino-style whole roast pig, Vietnamese spring rolls, Honduran seafood soup and many other dishes. The festival was well attended, with a lively and welcoming atmosphere as Efling members, their families and guests came together to taste food from different countries and learn about the cultures represented within Efling. Efling was honoured to welcome the President of Iceland, Halla Tómasdóttir, and her husband, Björn Skúlason. Food and Culture celebrates the rich diversity of Efling’s membership, and their visit was a valuable opportunity for members to share their cultures, traditions and cuisine with the presidential couple.
Eftir Sigrún Efling • 30. september 2026
Hátíðin Matur og menning fór fram í félagsheimili Eflingar sunnudaginn 27. september í fjórða sinn, þar sem félagsfólk Eflingar bauð gestum að kynnast matarmenningu frá sínum upprunalöndum. Á boðstólum var fjölbreytt úrval rétta sem félagsfólk hafði útbúið og gestir fengu tækifæri til að ferðast um heiminn með bragðlaukunum. Þar má meðal annars nefna heilsteikt svín að filippseyskum hætti, vorrúllur frá Víetnam, sjávarréttasúpu frá Hondúras, auk fjölmargra annarra rétta. Hátíðin var vel sótt og skapaðist lífleg og ánægjuleg stemning þegar Eflingarfélagar og fjölskyldur þeirra og gestir komu saman til smakka mat frá ólíkum löndum og kynnast menningu félagsfólks Eflingar.. Það var Eflingu mikill heiður að taka á móti frábærum gestum, forseta Íslands, frú Höllu Tómasdóttur, og eiginmanni hennar, Birni Skúlasyni. Matur og menning er hátíð sem fagnar þeim mikla fjölbreytileika sem einkennir félagsmannahóp Eflingar og það var dýrmætt tækifæri fyrir Eflingu að fá að kynna menningu, hefðir og matagerð félagsfólks fyrir forsetahjónunum.
Eftir Freyr Rögnvaldsson • 24. september 2026
The judging panel of Efling recently reached its decision on the winners of the union’s annual photography competition. The results were announced on Efling’s website on 18 September, along with the winning photographs and the photographs that received special recognition. Read the full story here. The prizes for the top three places were presented yesterday. The winners visited Efling’s offices at Guðrúnartún 1 to receive their prizes. Magdalena Kwiatkowska, Assistant to Efling’s Managing Director and a member of the judging panel, presented the prizes. Below are the Efling members who received prizes, along with their winning photographs.
Sýna fleiri fréttir