Ráðherra á Eflingarþingi: „Slík meðferð á ekki að líðast“

Dagsetning

26. febrúar 2026

deila

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ávarpaði Eflingarþing í morgun og lagði þar áherslu á mikilvægi baráttu félagsfólks fyrir bættum kjörum og réttindum. Hann sagði þingið marka söguleg tímamót og hrósaði Eflingu fyrir að kalla félagsfólk sitt saman til umræðu og stefnumótunar.


Í ræðu sinni beindi ráðherra orðum sínum sérstaklega að Eflingarfélögum og mikilvægi þeirra í íslensku samfélagi. „Við þurfum þessar vinnandi hendur, án þeirra ná hjól atvinnulífsins ekki að snúast,“ sagði hann og bætti við að óásættanlegt væri að illa væri farið með starfsfólk, ekki síst erlent vinnuafl. „Slík meðferð á ekki að líðast,“ ítrekaði hann.


Ragnar Þór lagði einnig áherslu á að stjórnvöld vildu eiga náið samstarf við verkalýðshreyfinguna og nýta reynslu hennar til að sporna gegn brotum á vinnumarkaði. Hann sagðist ætla að vinna að aðgerðum sem tryggja að kjarasamningar séu virtir og að starfsfólk komi heilt heim úr vinnu.


Í beinum skilaboðum til félagsfólks Eflingar sagði hann baráttu þeirra hafa skipt sköpum fyrir réttindi vinnandi fólks á Íslandi. Hann hvatti Eflingarfélaga til að halda áfram að sinni öflugu baráttu og taka virkan þátt í starfi félagsins.


Húsnæðismál voru einnig ofarlega á baugi í ávarpinu. Ráðherra sagði stöðuna á leigumarkaði óviðunandi og kallaði eftir frekari uppbyggingu og aðgerðum til að tryggja húsnæðisöryggi. Hann minnti á að Efling hefði veitt stjórnvöldum mikilvægt aðhald í þeim málaflokki.


Að lokum horfði hann til framtíðar og benti á að þrátt fyrir tæknibreytingar og nýjar áskoranir muni þörfin fyrir sterka verkalýðshreyfingu aldrei hverfa. Hann hvatti Eflingarfélaga til að halda áfram að standa saman og móta framtíð vinnumarkaðarins.



Að ávarpinu loknu svaraði ráðherra jafnframt fjölmörgum spurningum þingfulltrúa um ýmis málefni, þar sem húsnæðismál voru sérstaklega áberandi í umræðunni.

Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Efling’s autumn education programme is off to a strong start, with registrations exceeding expectations. Members have already had the opportunity to learn about their rights as tenants and employees. Tonight, 28 October, the focus turns to job searching and career development. The programme aims to help members understand their rights and make the most of the opportunities available to them.
Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Fræðsludagskrá haustsins hjá Eflingu er komin vel af stað og skráning hefur verið framar vonum. Félagsfólk hefur þegar getað fræðst um réttindi sín á leigu- og vinnumarkaði og í kvöld, 28. október, verður fjallað um atvinnuleit og starfsþróun. Markmiðið með fræðslunni er að félagsfólk þekki réttindi sín og viti hvaða möguleikar standa því til boða.
Eftir Sunna Björg Gunnarsdóttir • 26. október 2026
Sólveig Anna Jónsdóttir, chair of Efling, met today with Jónína Rósa Hjartardóttir, chair of Átak, the association of people with intellectual disabilities , and Heiða Vigdís Sigfúsdóttir, the association’s managing director.
Sýna fleiri fréttir