Skrifstofa Eflingar lokar klukkan 14:00
Skrifstofa Eflingar stéttarfélags lokar fyrr en vanalega í dag, miðvikudaginn 22. apríl, vegna starfsmannafundar. Skrifstofan lokar klukkan 14:00 í dag. Hægt er að senda erindi með tölvupósti og verður þeim svarað við fyrsta tækifæri.
Rétt er að minna á að skrifstofa Eflingar verður lokuð á morgun, 23. apríl, sumardaginn fyrsta. Opnað verður aftur á hefðbundnum opnartíma, klukkan 9:00, á föstudagsmorgun.


