
27. maí 2026
Skrifstofa Eflingar opnar klukkan 10:00 á föstudaginn
Skrifstofa Eflingar stéttarfélags opnar síðar en vant er næstkomandi föstudag, 29. maí, vegna starfsmannafundar. Skrifstofan opnar klukkan 10:00 þann dag í stað klukkan 9:00 líkt og vant er.

Eftir Freyr Efling
•
24. ágúst 2026
Efling Union is calling for nominations for delegates to the 47th Congress of the Icelandic Confederation of Labour (ASÍ), which will take place from 14–16 October. The Congress will be held at Hilton Reykjavík, Suðurlandsbraut 2, and will begin at 10:00 a.m. on Wednesday, 14 October. Efling has 56 delegate seats at the Congress. Full members of Efling may nominate themselves, and the union is now inviting nominations. Nominations can be submitted through the electronic form provided here and must be received by 4:00 p.m. on Monday, 31 August. Nominations for the ASÍ Congress 2026 Delegates will receive a daily allowance for the three days of the Congress. The allowance is ISK 18,100 per day, in accordance with the decision of the Travel Expenses Committee of the Ministry of Finance and Economic Affairs. Efling will reimburse delegates who lose wages as a result of attending the Congress, provided they submit supporting documentation to the union’s office. The ASÍ Congress is the Confederation's highest decision-making body. The Congress elects the President and Central Executive Committee, and considers amendments to the Confederation’s statutes as well as resolutions on its policies. The ASÍ website contains all the main information about the Congress, including the agenda, Congress documents and draft resolutions.

Eftir Freyr Efling
•
24. ágúst 2026
Efling stéttarfélag kallar eftir tilnefningum þingfulltrúa á 47. þing Alþýðusambands Íslands dagana 14.-16. október næstkomandi. Þingið fer fram á Hilton Reykjavík, Suðurlandsbraut 2, og hefst klukkan 10:00 að morgni miðvikudagsins 14. október. Efling á rétt á að senda 56 fulltrúa á þingið. Fullgildir félagsmenn í Eflingu geta tilnefnt sjálfa sig og óskar félagið hér með eftir tilnefningum. Þær má senda í gegnum rafrænt eyðublað sem er hér meðfylgjandi og þurfa tilnefningar að hafa borist fyrir klukkan 16:00 mánudaginn 31. ágúst. Tilnefningar á ASÍ þing 2026 Greiddir eru dagpeningar í þrjá daga fyrir setu á þinginu. Upphæðin er 18.100 krónur á dag, sem er í samræmi við ákvörðun Ferðakostnaðarnefndar Fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Fulltrúar sem verða fyrir launatapi vegna setu á þinginu fá það endurgreitt frá Eflingu, sendi þeir skrifstofu félagsins gögn til staðfestingar. Þing Alþýðusambandsins fer með æðsta vald í málefnum sambandsins. Þar fer fram kjör forseta og miðstjórnar auk þess sem lagabreytingar og ályktanir um stefnu sambandsins eru teknar fyrir. Á vef ASÍ má finna allar helstu upplýsingar um þingið, þar á meðal dagskrá, þingskjöl og drög að ályktunum sem fyrir liggja.

Eftir Freyr Efling
•
18. ágúst 2026
Árlega efnir Efling stéttarfélag til ljósmyndasamkeppni á meðal félagsfólks. Þema keppninnar er frí innanlands , og því er kjörið að nýta sumarferðalagið eða sumarbústaðaferðina til að fanga augnablikið með myndavélinni. Verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin: sætið: 50.000 kr gjafakort sætið: 25.000 kr gjafakort sætið: 25.000 kr gjafakort Myndirnar skulu vera í góðum gæðum og ekki er heimilt að senda inn fleiri en þrjár myndir frá hverjum keppanda. Skila þarf myndinni ásamt upplýsingum um nafn og símanúmer í tölvupósti á netfangið efling@efling.is með viðfangsefninu „Ljósmyndasamkeppni“. Athugið að ljósmyndasamkeppnin er eingöngu ætluð félagsfólki Eflingar . Myndirnar verða notaðar á miðlum Eflingar og í orlofshúsum Eflingar. Skilafrestur er 31. ágúst 2026. Vinningshafar verða tilkynntir 17. september 2026. Hér að neðan má sjá vinningsmyndina frá síðasta ári, mynd Agnieszku Górka, af lunda á Borgarfirði eystri.

