Tickets for Efling family movie screening go on sale on October 16th
Efling is hosting a film screening for its members and their families during the school winter break, on Friday, 23 October. The film Shaun the Sheep: The Beast of Mossy Bottom will be shown at Laugarásbíó at 14:00.
On Halloween Eve at Mossy Bottom Farm, excitement turns to dismay when the clumsy Farmer ruins the pumpkin patch! Shaun tries fixing it with science experiments, but things go wrong when a wild beast appears in the woods.
Tickets will go on sale on Friday the 16th of October at 12:00 at noon. Each ticket will cost 500 ISK and includes popcorn and a soft drink or juice. A maximum of five tickets may be purchased per member.

Eftir Sigrún Efling
•
12. október 2026
Efling stendur fyrir bíósýningu fyrir félagsmenn sína og fjölskyldur þeirra í vetrarfríi grunnskóla, föstudaginn 23. október. Sýnd verður fjölskyldumyndin Hrúturinn Hreinn: Forynjan á Flóamýri í Laugarásbíó kl. 14:00. Íbúar Mosabotna-býlisins hlakka til hrekkjavökunnar – þangað til klaufski bóndinn eyðileggur ástkæra graskersbeð hjarðarinnar! Þegar Hrúturinn Hreinn bregður sér í hlutverk galins vísindamanns til að laga vandann fer allt úr böndunum. Bóndinn er týndur og villidýr gengur laust í skógum Mosabæjar. Miðasala hefst föstudaginn 16. október kl 12:00 og fer fram á Mínum síðum Eflingar. Miðinn mun kosta 500kr. og innifalið er popp og gos eða djús. Hámark 5 miðar fyrir hvern félagsmann.

6. október 2026
The government has introduced a bill on limiting rent increases, for both residential and commercial rents. The bill marks a turning point in regulating Iceland's rental market, which has been in complete disarray due to excessive increases and insecurity for renters. Efling has long fought for the introduction of a rent brake. Efling's board submitted a detailed proposal to the government last spring regarding a rent brake and this new bill largely meets Efling's proposals. The main provisions added in the bill are as follows: Monthly rent increases are prohibited. At least 12 months must pass between increases, and they must be stipulated in the rental agreement. Annual increases may not exceed the rise in the price index (Icel.: verðlagsvísitala). Residential rents in Iceland have risen far faster than general price levels over the last 10-15 years, so this limits one of the biggest drivers of inflation. Benchmarks are set for how much rents can increase both at the start and renewal of rental agreements, and multiple price increases at the same time are prohibited. Reference figures for market rents, by type of housing and location, will be published regularly and will serve as benchmarks in rent negotiations. Renters' security and consumer protections will be strengthened. Efling would have liked to go even further, for example by tying the cap on annual rent increases to a price index that excludes the housing component as this would slow inflation more. The bill instead uses the general consumer price index. Despite this, the cap on annual rent increases will be very important as rents have risen much faster than general price levels over the last 10-15 years. The bill significantly improves renters' circumstances, and also restrains the rent prices that have been an important factor in fueling inflation in Iceland in recent years. It is important that the bill be processed quickly and is implemented as soon as possible.

6. október 2026
Stjórnvöld hafa lagt fram frumvarp um hömlur á hækkanir leigu, bæði fyrir íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði. Frumvarpið markar tímamót í reglun leigumarkaðarins á Íslandi sem hefur verið í algjörum ólestri, með óhóflegum hækkunum og miklu óöryggi leigjenda. Efling hefur lengi barist fyrir innleiðingu á leigubremsu og lagði stjórn Eflingar útfærðar tillögur fyrir stjórnvöld síðastliðið vor. Hið nýja frumvarp kemur að verulegu leyti til móts við þær tillögur Eflingar. Helstu nýmælin eru eftirfarandi: Mánaðarlegar hækkanir eru bannaðar. Minnst 12 mánuðir þurfa að líða milli hækkana, sem þurfa að vera samningsbundnar. Árlegar hækkanir mega ekki verða meiri en hækkun verðlagsvísitölunnar, en leiga íbúðarhúsnæðis hefur hækkað mjög langt umfram almennt verðlag hér á landi á síðustu 10-15 árum. Þannig eru settar hömlur á einn af stærstu drifkröftum verðbólgunnar. Sett eru viðmið um svigrúm til hækkana á leigu við upphaf og endurnýjun leigusamninga og tekið fyrir margþættar verðhækkanir á sama tíma. Birtar verða reglulega viðmiðunartölur um markaðsverð á leigu eftir gerðum húsnæðis og staðsetningu sem verða leiðbeinandi við samninga um leiguverð. Öryggi og neytendavernd leigjenda verða efld. Efling hefði viljað ganga enn lengra, t.d. með því að miða þak á árlegar hækkanir leigu við verðlagsvísitölu án húsnæðisliðarins, sem hefði hægt meira á verðbólgunni, en frumvarpið miðar við almenna vísitölu neysluverðs. Þakið verður samt afar mikilvægt því leiga hefur hækkað langt umfram almennt verðlag á síðustu 10-15 árum. Með frumvarpinu er í senn bættur hagur leigjenda svo um munar og um leið eru settar hömlur á mikilvægan þátt sem hefur magnað upp verðbólguna hér á landi á síðustu árum. Mikilvægt er að frumvarpið fái skjóta afgreiðslu og komi til framkvæmda sem fyrst.
