Árangur Eflingar vekur athygli í Evrópu

Dagsetning

23. október 2026

deila

Árangur Eflingar í ræstingamálum nýttur í baráttu samtaka verkalýðshreyfinga í Evrópu gegn félagslegum undirboðum

UNI Europa, Evrópusamtök stéttarfélaga í þjónustugreinum, kynnti árangur Eflingar í vikunni fyrir þingmönnum Evrópuþingsins í Strassborg. Þar er nú tekist á um nýjar reglur um opinber innkaup sem eiga að gilda í allri Evrópu.

Með fordæmi Íslands sýna samtökin að hægt er að tryggja virðingu fyrir kjarasamningum í opinberum útboðum. Þetta er ein helsta krafa UNI Europa í herferðinni „No public contract without collective agreement“, eða enginn opinber samningur án kjarasamnings.


Hverju náði Efling fram?

Í síðustu viku gaf fjármála- og efnahagsráðuneytið út ný viðmið fyrir ræstingaútboð ríkisins. Viðmiðin eru þau fyrstu sinnar tegundar hér á landi. Þau voru unnin í samráði við Eflingu og Starfsgreinasambandið, eftir að Efling hafði lengi barist gegn undirboðum í ræstingum.

Samkvæmt viðmiðunum þarf hver bjóðandi að lýsa því yfir að hann fylgi kjarasamningum og lögum og stéttarfélag starfsfólksins þarf að staðfesta yfirlýsinguna. Í verkum sem eru stærri en 1.000 fermetrar metur óháður aðili hve marga tíma verkið tekur. Tilboðum sem byggja á meiri afkastakröfum en kjarasamningur leyfir skal hafnað. Viðmiðin gilda um stofnanir ríkisins, til dæmis Háskóla Íslands, Landspítala, framhaldsskóla og ÁTVR.

Markmiðið er að fyrirtæki geti ekki lengur unnið útboð með því að bjóða lágt verð á kostnað ræstingafólks.


Barátta sem nær út fyrir Ísland

Evrópusambandið vinnur nú að nýrri reglugerð um opinber innkaup sem á að koma í stað þriggja eldri tilskipana. Mikið er í húfi, því reglurnar ná til um 2.500 milljarða evra af opinberu fé. UNI Europa er fulltrúi sjö milljóna launafólks í þjónustugeiranum og hefur lengi barist gegn því að lægsta verð ráði eitt því hver fær verkið. Það hefur leitt til kapphlaups á botninn í opinberum útboðum, þar sem verka- og láglaunafólk ber kostnaðinn.


UNI Europa fagnar því að tillaga framkvæmdastjórnarinnar viðurkenni mikilvægi kjarasamninga og hverfi frá því að lægsta verð ráði. Samtökin telja þó að tillagan gangi ekki nógu langt og krefjast þess að fyrirtæki með kjarasamninga fái alltaf forgang. Evrópusambandið hefur sett sér það markmið að kjarasamningar nái til 80% launafólks í öllum aðildarríkjum. UNI Europa bendir á að opinber innkaup séu ein áhrifaríkasta leiðin til að ná því markmiði. Þess vegna hafa samtökin vakið athygli á fordæmi Íslands og hvatt Evrópusambandið til að fara sömu leið.


„Það skiptir okkur miklu, og ekki síst félagsfólkinu sem stóð að baki þessari baráttu, að sigurinn veki athygli og sé ræddur á vettvangi Evrópusambandsins,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. „Reynsla okkar sýnir hvers vegna reglur um opinber innkaup skipta máli. Þegar opinberir aðilar semja við fyrirtæki sem grafa undan kjarasamningum er það lægst launaða fólkið sem borgar brúsann.“


Efling styður heilshugar baráttu UNI Europa gegn félagslegum undirboðum í opinberum útboðum.

Eftir Sunna Björg Gunnarsdóttir • 23. október 2026
Efling’s cleaning sector victory used in Europe’s union movement’s fight against social dumping
Eftir Sunna Björg Gunnarsdóttir • 19. október 2026
Wolt couriers met at Efling's offices today
Eftir Sunna Björg Gunnarsdóttir • 19. október 2026
Sendlar Wolt komu saman í félagsheimili Eflingar í dag
Sýna fleiri fréttir