Gleðilegan kvenréttindadag!

Dagsetning

18. júní 2026

deila

Efling stéttarfélag óskar félagskonum sínum og öllum konum á landinu til hamingju með kvenréttindadaginn. Í dag, 19. júní, eru 111 ár liðin frá því að íslenskar konur, 40 ára og eldri, fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Árið 1920, með upptöku nýrrar stjórnarskrár, lækkuðu aldursmörkin í 25 ára aldur. 


Kvenréttindadagurinn er hátíðisdagur, en ekki síst er hann baráttudagur. Staðan er sú að á íslenskum vinnumarkaði er fjarri því komið á jafnrétti meðal kynjanna. Þetta hafa Eflingarkonur reynt á eigin skinni. 


Samkvæmt niðurstöðum úr könnunum Vörðu-Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins búa Eflingarkonur við hvað erfiðasta stöðu á íslenskum vinnumarkaði. Stór hluti þeirra á erfitt með að ná endum saman, andleg heilsa um helmings þeirra er slök og yfir helmingur þeirra stefnir í kulnun. 


Við þetta verður ekki búið. Eflingarkonur, og aðrar verkakonur, halda íslensku samfélagi gangandi. Það eru þær sem knýja áfram hjól atvinnulífsins, sem sinna börnum, öldruðum og sjúkum. Þær eiga skilið virðingu og mannsæmandi kjör, og þær eiga skilið að verða metnar að verðleikum. Sú er krafa Eflingar á kvenréttindadaginn, sem og alla aðra daga. 



Gleðilegan kvenréttindadag. 


Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Efling’s autumn education programme is off to a strong start, with registrations exceeding expectations. Members have already had the opportunity to learn about their rights as tenants and employees. Tonight, 28 October, the focus turns to job searching and career development. The programme aims to help members understand their rights and make the most of the opportunities available to them.
Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Fræðsludagskrá haustsins hjá Eflingu er komin vel af stað og skráning hefur verið framar vonum. Félagsfólk hefur þegar getað fræðst um réttindi sín á leigu- og vinnumarkaði og í kvöld, 28. október, verður fjallað um atvinnuleit og starfsþróun. Markmiðið með fræðslunni er að félagsfólk þekki réttindi sín og viti hvaða möguleikar standa því til boða.
Eftir Sunna Björg Gunnarsdóttir • 26. október 2026
Sólveig Anna Jónsdóttir, chair of Efling, met today with Jónína Rósa Hjartardóttir, chair of Átak, the association of people with intellectual disabilities , and Heiða Vigdís Sigfúsdóttir, the association’s managing director.
Sýna fleiri fréttir