12. mars 2026

Glæsileg rekstrarniðurstaða Eflingar

Dagsetning

12. mars 2026

deila

Rekstur Eflingar stéttarfélags var afar öflugur á rekstrarárinu 2025. Tekjur hækkuðu um 16% milli ára, afkoma batnaði um 301 milljón króna og fjárhagsstaða félagsins styrktist talsvert.


Ársreikningur Eflingar stéttarfélags fyrir árið 2025 var samþykktur af stjórn félagsins í dag, 12. mars 2026. Niðurstöður rekstrarársins 2025 eru afar jákvæðar. Félagið stendur betur að vígi en nokkru sinni fyrr, með sterkum tekjugrunni, hóflegum vexti rekstrarkostnaðar og enn bættri afkomu, á sama tíma og markviss uppbygging í þágu félagsmanna átti sér stað.


Heildarafkoma ársins nam tæpum 1,3 milljörðum króna, sem er sambærileg afkoma og árið 2024.


Verulegur tekjuvöxtur 


Heildartekjur Eflingar námu rúmum 4,2 milljörðum króna árið 2025, sem er 579 milljónum krónum hærra en árið 2024, eða aukning um 15,9%. Félagsgjöld hækkuðu um 452 milljónir og tekjur af orlofshúsum og annarri þjónustu jukust einnig, sem endurspeglar bæði fjölgun félaga og meiri virkni í starfsemi félagsins.


Þrátt fyrir áskoranir á innlendum og erlendum mörkuðum, meðal annars vegna hás vaxtastigs og slakrar ávöxtunar sem hafði áhrif á fjármunatekjur, hefur Efling haldið rekstri sínum á öruggum og jákvæðum grunni. Þetta undirstrikar ráðdeild, ábyrgð og aga í rekstri félagsins.


Kostnaður hækkaði minna en áætlað var


Kostnaður félagsins, þar með talið útgreiddar bætur og styrkir, hækkaði í 3,5 milljarða króna, sem er hækkun um 8,6%. Hins vegar lækkaði rekstrarkostnaður skrifstofu félagsins um ríflega 6 milljónir króna milli ára. Þetta sýnir skýrt aðhaldssemi og góða stjórn á rekstrarþáttum félagsins. Launa- og starfsmannakostnaður hækkaði í takt við aukin verkefni og fjölgun stöðugilda, auk kjarasamningsbundinna launahækkunna.


Á árinu var jafnframt ráðist í fjölmargar fjárfestingar og endurbætur sem styrkja langtímaafkomu félagsins og bæta þjónustu við félagsmenn. Þar má nefna endurnýjun húsnæðis og framþróun í upplýsingatækni, auk umtalsverðra endurbóta á orlofshúsum, sem stuðla að betri nýtingu og auknum gæðum í þjónustu sem mun nýtast félagsfólki til framtíðar.


Afkoman styrkist 


Rekstrarniðurstaða ársins nam 722 milljónum króna, sem er mikil bæting frá 421 milljón árið 2024. Fjármagnsafkoma Eflingar nam 563 milljónum króna. Þrátt fyrir sveiflur á mörkuðum var fjármagnsafkoman áfram sterk. Árangurinn sýnir að Efling bregst vel við breytilegu efnahagsumhverfi með markvissum og ábyrgum aðgerðum.


Eignir og eigið fé halda áfram að vaxa 


Heildareignir jukust um tæplega 1,5 milljarða króna, eða 8,9%, og námu ríflega 18,2 milljörðum króna í lok árs. Miklar framkvæmdir og fjárfestingar í innviðum og þjónustu eru lykilþættir í þessari aukningu.


Eigið fé jókst um 1.345 milljónir króna, eða 8,3%, og stóð við árslok í um 17,6 milljörðum króna. Þetta endurspeglar sterka fjárhagsstöðu og sjálfbæra rekstrarstefnu Eflingar stéttarfélags.


Framsýni og ábyrgð skila árangri


„Niðurstöður ársins endurspegla hvernig við höfum lagt ríka áherslu á ábyrg fjármál, gagnsæi og framsýna ákvarðanatöku. Við höfum unnið skipulega að því að bæta innri ferla, styrkja rekstrargrundvöll félagsins og tryggja félagsmönnum betri þjónustu. Reksturinn er að skila sér vel en vegna erfiðra aðstæðna á fjármagnsmörkuðum var ávöxtun fjármuna félagsins undir væntingum,“ segir Perla Ösp Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Eflingar.


Á sama tíma og reksturinn hefur verið traustur hefur Efling líka farið í markvissar aðgerðir til að byggja upp innviði til framtíðar, efla þjónustu og tryggja að félagið standi sterkt gegn þeim áskorunum sem fylgja sveiflukenndu efnahagsumhverfi.


Efling betur í stakk búin en nokkru sinni fyrr


Fjárhagslegur stöðugleiki, ráðdeild og framsækni eru nú ráðandi þættir í starfsemi félagsins. Efling stendur því betur að vígi en nokkru sinni áður, fjárhagslega, skipulagslega og þjónustulega, og mun halda áfram á sömu braut með ábyrgð, ráðdeild og metnað að leiðarljósi.


Ársreikningur Eflingar er birtur hér á vefsíðu félagsins en jafnframt liggur eintak hans frammi í afgreiðslu Eflingar stéttarfélags, Guðrúnartúni 1, til sýnis fyrir félagsfólk.


Hér má finna undirritaðan ársreikning Eflingar stéttarfélags fyrir árið 2025.


Eftir Sigrún Efling 9. júlí 2026
At the end of June, representatives of Efling attended a conference held by UNI Global, the international federation that Efling joined at the beginning of the year. The conference was the regular conference of UNI Europa Property Services, the UNI division that coordinates cooperation between European affiliate unions in the cleaning and security sectors. The conference took place in Paris, at the offices of the French trade union CFDT Services in the 19th arrondissement, a historic working-class district of the city. Efling was represented at the conference by Sólveig Anna Jónsdóttir, chair of the union, and Viðar Þorsteinsson, director of education and social affairs. The programme began on Wednesday, 24 June, with discussions including UNI’s campaign to organise cleaning work during daytime hours. The campaign is called the European Daytime Cleaning Alliance and involves cooperation with employers as well as advocacy at European Union level. On Thursday, 25 June, Viðar took part in a panel discussion with trade union representatives from Belgium and Italy on the findings of an extensive comparative survey commissioned by UNI on collective agreements for security guards and cleaners in Europe. Efling was one of the respondents to the survey. In his contribution, Viðar described Efling’s work in the cleaning sector, which has included increased monitoring of workload, work pace and working conditions among cleaners, as well as communication with public authorities on these issues. The conference programme included panel discussions on a wide range of topics. These included the conditions of migrants and women, issues of particular relevance to the cleaning sector, and the work of UNI and its affiliates to hold large multinational companies in cleaning and security services accountable for workers’ welfare regardless of location, including through so-called global agreements. At the end of the day on Thursday, members of the French trade union CFDT gave speeches in which they discussed their working conditions and terms of employment. The final day of the conference, Friday, 26 June, began with discussions on public procurement. UNI has advocated for stricter requirements concerning workers’ rights in procurement processes. Cleaning and security services are both examples of work that public institutions and municipalities are increasingly outsourcing to private companies. Representatives of UNI affiliates on the panel described how unions in their countries have sought to have a positive influence on government procurement policy and to counteract procurement practices that encourage a “race to the bottom” through competition at the expense of workers’ rights and welfare. French economist François-Xavier Devetter, professor at the University of Lille, then gave a presentation on his research into the position of cleaners in France. He has devoted much of his research to this field and has published books on the subject. The closing remarks of the conference were delivered by Zeynep Biçici, a leader and chief negotiator for cleaners within the German trade union IG BAU. She is also president of UNI Europa Property Services and was re-elected to the position at the conference. Participants at the conference included leaders and staff from Nordic trade unions with which Efling has already built ties through SUN. “ After taking part in the UNI Europa Property Services conference, I am convinced of the value of participating in international trade union cooperation. It gives us the opportunity to learn from the best work being done by our sister unions and to strengthen our knowledge of conditions in the sectors where our members are in the most vulnerable position, which is especially true of the cleaning sector. In both cleaning and security services, there are large companies operating across national borders. When trade unions are able to exchange information and share their experience, it makes a decisive difference to our position in relation to employers , ” said Sólveig Anna Jónsdóttir, chair of Efling. “ The cleaning sector has been a major focus for Efling in recent months. Our communication with sister unions in the Nordic countries on issues relating to the sector has already been very useful, and it seems to me that cooperation with European unions will be useful as well ,” said Viðar Þorsteinsson.
Eftir Sigrún Efling 9. júlí 2026
Í lok júní sóttu fulltrúar Eflingar ráðstefnu á vegum alþjóðasamtakanna UNI Global sem Efling fékk aðild að í byrjun árs . Um var að ræða reglulega ráðstefnu UNI Europa Property Services , en sú deild heldur utan um samstarf evrópskra aðildarfélaga UNI í ræstinga- og öryggisvarðageiranum. Ráðstefnan fór fram í París í húsakynnum franska stéttarfélagsins CFDT Services í 19. hverfi, sem er gamalgróið verkamannahverfi borgarinnar. Ráðstefnuna sóttu fyrir hönd Eflingar Sólveig Anna Jónsdóttir formaður félagsins og Viðar Þorsteinsson fræðslu- og félagsmálastjóri. Dagskrá hófst miðvikudaginn 24. júní, og var þá m.a. fjallað um átaksverkefni UNI um skipulagningu ræstingavinnu á dagvinnutíma. Átakið fer fram undir heitinu „European Daytime Cleaning Alliance“ og felur í sér samstarf við atvinnurekendur og þrýsting á vettvangi Evrópusambandsins. Fimmtudaginn 25. júní tók Viðar þátt í pallborðsumræðum ásamt fulltrúum stéttarfélaga frá Belgíu og Ítalíu um niðurstöður viðamikillar samanburðarkönnunar sem UNI hefur látið vinna á kjarasamningum öryggisvarða og ræstingafólks í Evrópu. Efling var einn af svarendum könnunarinnar. Viðar greindi í innleggi sínu frá starfi Eflingar í ræstingageiranum, sem m.a. hefur falið í sér aukið eftirlit með verkhraða og vinnuaðstæðum ræstingafólks og samskipti við opinbera aðila þar að lútandi. Pallborð um fjölbreytt málefni voru á dagskrá ráðstefnunnar. Má þar m.a. nefna aðstæður innflytjenda og kvenna, sem eiga sérstakt erindi við ræstingageirann, og vinnu UNI og aðildarfélaga við að draga stórfyrirtæki í ræstingum og öryggisvörslu til ábyrgðar á velferð starfsfólks óháð staðsetningu, m.a. í gegnum svokallaða hnattræna samninga („global agreements“). Í lok dags á fimmtudeginum fluttu félagsmenn úr franska stéttarfélaginu CFDT ávörp þar sem ræddu um aðstæður sínar og kjör. Síðasti dagur ráðstefnunnar, föstudagurinn 26. júní, hófst á umræðum um opinber útboð, en UNI hefur beitt sér fyrir hertum skilyrðum varðandi réttindi verkafólks í útboðum. Bæði ræsting og öryggisvarsla eru dæmi um störf sem opinberar stofnanir og sveitarfélög bjóða í vaxandi mæli út til einkafyrirtækja. Fulltrúar aðildarfélaga UNI í pallborðinu greindu frá því hvernig félögin hafa í sínum heimalöndum leitast við að hafa jákvæð áhrif á stefnu stjórnvalda í útboðsmálum og spornað gegn því að útboð hvetji til „kapphlaups á botninn“ í gegnum samkeppni á kostnað réttinda og velferðar verkafólks. Þá flutti franski hagfræðingurinn Francois-Xavier Devetter, prófessor við háskólann í Lille, kynningu á rannsóknum sínum á stöðu ræstingafólks í Frakklandi, en hann hefur helgað sig rannsóknum á því sviði og gefið út bækur um það. Lokaorð ráðstefnunnar flutti Zeynep Bicici, forystukona og aðalsamningamaður ræstingafólks innan þýska stéttarfélagsins IG Bau. Hún er jafnframt forseti UNI Europa Property Services og var hún endurkjörin í það embætti á ráðstefnunni. Meðal þátttakenda í ráðstefnunni voru forystumenn og starfsfólk úr norrænum stéttarfélögum sem Efling hefur þegar byggt upp tengsl við á vettvangi SUN. „Eftir þátttöku í ráðstefnu UNI Europa Property Services er ég sannfærð um gildi þess að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi verkalýðsfélaga. Okkur gefst tækifæri til að læra af því sem best er gert hjá systurfélögum okkar og að styrkja þekkingu okkar á stöðu mála í þeim geirum þar sem félagsfólk okkar stendur hvað höllustum fæti, sem á sérstaklega við um ræstingageirann. Í bæði ræstingum og öryggisvörslu eru stórfyrirtæki sem starfa þvert á landamæri. Þegar stéttarfélög geta skipst á upplýsingum og deilt reynslu sinni þá skiptir það sköpum fyrir okkar vígstöðu gagnvart atvinnurekendum,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður. „ Ræstingageirinn hefur á síðustu misserum verið í brennidepli hjá Eflingu. Samskipti við systurfélög okkar á Norðurlöndum varðandi málefni geirans hafa þegar gagnast okkur mjög vel, og mér sýnist að samvinna við evrópsku félögin muni gera það líka ,“ sagði Viðar Þorsteinsson.
Eftir Freyr Efling 3. júlí 2026
Efling Union's office will operate on reduced opening hours during the peak summer period. From 6 July to 4 August, the office will be open from 10:00 to 14:00. Regular opening hours will resume after the August Bank Holiday weekend (Verslunarmannahelgi).
Sýna fleiri fréttir