Hátt í 100 trúnaðarmenn Eflingar treystu böndin í óvissuferð

Dagsetning

8. júní 2026

deila

Í lok maí tóku hátt í 100 trúnaðarmenn af almenna og opinbera markaðnum þátt í síðasta trúnaðarmannanámskeiði vetrarins. Dagurinn hófst á fræðslu um verkfallsaðgerðir og svo var haldið af stað í óvissuferð til að efla samstöðuna í hópnum. 


Fyrsta stopp var á Hvolsvelli þar sem farið var í ýmsa hópeflisleiki. Trúnaðarmenn fengu meðal annars þjálfun í samhæfðum danshreyfingum og í að nota samskipti til að komast að því hvað þeir ættu sameiginlegt og hvað væru sérkenni hvers og eins. Hluti af hópnum fór eftir það í söguferð um Fljótshlíð á meðan aðrir fóru í gönguferð inn í Nauthúsagil. 



Allir trúnaðarmennirnir enduðu síðan daginn við varðeld í Tumastaðaskógi þar sem spilað var á gítar og sungið. 

Þetta er annað árið í röð sem trúnaðarmenn fara saman í vorferð en í fyrra var keyrt á vélsleðum upp á Langjökul. Að sögn Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, var vorferðin í ár einstaklega vel heppnuð og hún telur að þessi hefð sé komin til að vera í starfi félagsins. 


Efling er stolt af þeim mikla fjölda félagsmanna sem hafa gefið kost á sér til starfa trúnaðarmanna. Störf þeirra eru grunnurinn að allri verkalýðsbaráttu félagsins, sem hefur á undanförnum árum skilað verkafólki mikilvægum og mælanlegum kjarabótum. Eflingarfélagar allir eru hvattir til að gefa kost á sér til trúnaðarstarfa, bæði sem trúnaðarmenn á vinnustöðum og einnig í öðrum hlutverkum innan félagsins. Frekari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á netfangið felagsmal@efling.is. 



Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Efling’s autumn education programme is off to a strong start, with registrations exceeding expectations. Members have already had the opportunity to learn about their rights as tenants and employees. Tonight, 28 October, the focus turns to job searching and career development. The programme aims to help members understand their rights and make the most of the opportunities available to them.
Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Fræðsludagskrá haustsins hjá Eflingu er komin vel af stað og skráning hefur verið framar vonum. Félagsfólk hefur þegar getað fræðst um réttindi sín á leigu- og vinnumarkaði og í kvöld, 28. október, verður fjallað um atvinnuleit og starfsþróun. Markmiðið með fræðslunni er að félagsfólk þekki réttindi sín og viti hvaða möguleikar standa því til boða.
Eftir Sunna Björg Gunnarsdóttir • 26. október 2026
Sólveig Anna Jónsdóttir, chair of Efling, met today with Jónína Rósa Hjartardóttir, chair of Átak, the association of people with intellectual disabilities , and Heiða Vigdís Sigfúsdóttir, the association’s managing director.
Sýna fleiri fréttir