4. mars 2026

Landsréttur staðfestir atvinnurekstrarbann rekstraraðila Ítalíu

Dagsetning

4. mars 2026

deila

Rekstraraðilar veitingastaðarins Ítalíu hafa verið dæmdir í atvinnurekstrarbann til þriggja ára. Þeir Elvar Ingimarsson og Björgvin Narfi Ásgeirsson, fyrrum eigendur Ítalgest ehf, rekstarfélags veitingastaðarins, voru dæmdir til atvinnurekstrarbanns í Héraðsdóm Reykjavíkur 12. janúar síðastliðinn. Lansdréttur hefur nú staðfest dóm héraðsdóms. 


Efling stéttarfélag hóf aðgerðir vegna misnotkunar, launaþjófnaðar og réttindabrota á veitingastaðnum Ítalíu, sem og á öðrum veitingastöðum sem reknir voru af þeim Elvari og Björgvini Narfa, í september 2024. Vakti félagið athygli á fjölmörgum og alvarlegum brotum gegn réttindum verakafólks á umræddum veitingastöðum, sem staðið höfðu í lengri tíma. Trúnaðarráð Eflingar samþykkti ályktun á fundi sínum 12. september 2024 þar sem misnotkun vinnuafls og launaþjófnaður á veitingahúsinu Ítalíu voru fordæmd. Eftir fundinn var gripið til samstöðuaðgerðar á Frakkastíg fyrir utan veitingahúsið.


Þá safnaði Efling saman vitnisburðum starfsfólks sem unnið hafði á veitingastöðum þeirra félaga, aflaði gagna og kom þeim á framfæri til að vekja athygli á brotum gegn verkafólki. Töluverð fjölmiðlaumræða skapaðist vegna þessa. 


Félagið Ítalgest var úrskurðað gjaldþrota 9. október 2024. Í framhaldinu reyndi Elvar að halda því fram að réttmætar aðgerðir Eflingar hefðu leitt til gjaldþrotsins. Það voru ósannindi þar eð krafa um gjaldþrotaskipti Ítalgest hafði verið lögð fram viku áður en aðgerðir Eflingar hófust. Það sýndi því augljóslega í hvers konar öngstræti eigendur þess höfðu komið félaginu, með óábyrgum rekstri og brotum gegn starfsfólki. 


Dómur héraðsdóms, og staðfesting Landsréttar, staðfestir hvers konar brotastarfsemi átti sér stað við rekstur félagsins. Skiptastjóri þrotabús Ítalgest, Björn Þorri Viktorsson, krafðist þess að þeir Elvar og Björgvin Narfi myndu sæta atvinnurekstrarbanni vegna aðkomu sinnar að félaginu, en rekstur þess minnti fremur á skipulagða brotastarfsemi en rekstur veitingahúsa. Þannig fundust fjölmargar óútskýrðar greiðslur út úr félaginu inn á persónulega reikninga þeirra félaga, eða til fólks þeim tengdum fjölskylduböndum. Kröfur í þrotabúið námu um 116 milljónum króna en því sem næst engar eignir fundust í því. 


Því voru þeir félagar, Elvar Ingimarsson og Björgvin Narfi Ásgeirsson, sem fyrr segir dæmdir til atvinnurekstrarbanns til þriggja ára, sem er hámarksrefsing samkvæmt lögum. 



Efling fagnar því að brugðist sé við því sem virðist hafa verið skipulögð brotastarfsemi til langs tíma af hálfu þeirra félaga. Ótækt er að menn komist upp með að brjóta gegn verkafólki svo árum skiptir, án nokkurra afleiðinga. 


Hér má sjá umfjöllun Eflingar um brotastarfsemi þeirra Elvars Ingimarssonar og Björgvins Narfa Ásgeirssonar. 

Eftir Freyr Efling 1. september 2026
Efling’s office will be closed for a staff day on Friday, 11 September. The office will reopen at its regular opening hours on Monday, 14 September.
Eftir Freyr Efling 1. september 2026
Skrifstofa Eflingar stéttarfélags verður lokuð vegna starfsmannadags föstudaginn 11. september næstkomandi. Skrifstofan opnar aftur á hefðbundnum opnunartíma mánudaginn 14. september.
Eftir Freyr Efling 31. ágúst 2026
As autumn approaches, it's time once again for Efling’s wonderful Food and Culture Festival. The event will be held for the fourth time on Sunday, 27 September, at Efling’s Community Centre at Guðrúnartún 1. At the Food and Culture Festival, Efling members can serve fellow members dishes from their home countries. Efling reimburses the cost of ingredients and provides all tableware and refreshments. In recent years, dishes from more than a dozen different countries have been served. Efling members come from 144 different countries, so guests can look forward to a truly diverse culinary experience at this year’s festival. Efling members who would like to serve food from their home country are invited to register through the registration page provided. Registration must be completed by 12:00 noon on 18 September at the latest. As before, Efling will reimburse ingredient costs up to ISK 50,000 upon presentation of receipts. Ticket sales for guests will begin at 12:00 noon on 14 September . Further information will be announced closer to the date. The number of tickets is limited, so make sure to mark the date in your calendar to secure your place.
Sýna fleiri fréttir