5. mars 2026

Efling demands reforms in the rental market

Dagsetning

5. mars 2026

deila

The Icelandic rental market is not an add-on or a band-aid on the housing market. Many Efling associations are on the rental market for a long time and the problems of the rental market will not be solved by simply hoping that tenants will move into owner-occupied housing.


This is the content of a resolution that was adopted at the Efling meeting on February 27 last year, where fundamental reforms of the Icelandic rental market are required. The resolution includes ten demands from the Efling union to the Icelandic authorities to address the serious problems on the rental market. The main demands include, among others:


  • Establish laws and regulations that limit sudden rent increases, support long-term agreements and reward reliable tenants.
  • Ensure regular monitoring of rental housing to assess condition and fair pricing.
  • Lease agreements must be in Icelandic krona.
  • Housing rent allowances should be individualized, based on each tenant's income.
  • A database of tenants and landlords should be set up to promote transparency.
  • Limiting will become large-scale short-term rentals for tourists.
  • The supply of rental housing must be increased and the share of non-profit rental associations in such a structure must be secured. A housing cooperative for workers should then be established where it would be possible to acquire apartments with a purchase lease. 


The resolution follows here in its entirety. 


House rent

Icelandic authorities must face the fact that the rental market is not an add‑on or a band‑aid on the Icelandic housing market. Many Efling members are on the rental market for a long time and need to rely on a housing lease as a lifeline in their existence. The problems of the rental market will not be solved by simply hoping that tenants will move into owner‑occupied housing. In a healthy housing market people can choose between acquiring housing at an affordable price or renting in a safe and cost‑effective way. There needs to be a humane, regulated and stable rental market that is a realistic option for working people, as is known in our neighboring countries. 


Efling associations make the following demands of the Icelandic authorities on matters of the rental market: 


  • Far from enough has been done to curb the powers of landlords to make tenants' existence a joke. Laws and regulations must be enacted that ensure fair and reliable limits on rent increases, encourage agreements to be maintained for longer periods, and reward reliable tenants who meet all the conditions of the tenancy agreement. 
  • It must be ensured that the appropriate authorities (e.g., HSE) can carry out supervision in accordance with the authorizations that will be introduced so that these regulations and laws are complied with. 
  • Regular monitoring of rental housing must be carried out, for example every two years, so that the condition can be assessed, a fair market price determined, and quality, safety and transparency in the rental market ensured. 
  • Rental agreements must be made in Icelandic krona, and not in foreign currencies. 
  • Landlords shall be responsible for ensuring that the registration of tenants who live in rental housing is correct and up‑to‑date. 
  • Housing rent allowances should be calculated individually, based on the personal income of each tenant, rather than on joint income. Such a method would be more consistent with Article 76 of the Constitution of Iceland, which guarantees an individual's right to social assistance. 
  • It is also important to establish a database of tenants and landlords. Access to such information contributes to a healthy rental market with increased trust and transparency in the process for both parties. 
  • In addition, it is necessary to ensure access to independent parties that both tenants and landlords can turn to, in order to record and preserve images of the condition of the apartment before and after the tenancy. Such registration can be used as neutral evidence and contribute to a fair settlement of insurance/payments at the end of the tenancy. 
  • It is necessary to be much stricter about the practice of short-term rentals of residential housing for tourists. Renting a home for a short period within a year can be considered an additional income source for families. However, this should not become a large-scale industry of investors and speculators that takes up a significant portion of the housing stock that the people of the country need in order to live a safe and decent life. 
  • It is necessary to increase the supply of rental housing, as part of a broader, financed and timed government housing plan that is prepared according to solid forecasts and in consultation with the municipalities. It is necessary to ensure the participation of non‑profit rental associations in that construction, for example through Bjarg which has proven its value as a targeted solution for people on lower wages. It would also be appropriate to establish a housing association for workers where there is an opportunity to acquire the apartments through rent. 
Eftir Freyr Efling 29. maí 2026
Árlega efnir Efling stéttarfélag til ljósmyndasamkeppni á meðal félagsfólks. Þema keppninnar er frí innanlands , og því er kjörið að nýta sumarferðalagið eða sumarbústaðaferðina til að fanga augnablikið með myndavélinni. Verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin: sætið: 50.000 kr gjafakort sætið: 25.000 kr gjafakort sætið: 25.000 kr gjafakort Myndirnar skulu vera í góðum gæðum og ekki er heimilt að senda inn fleiri en þrjár myndir frá hverjum keppanda. Skila þarf myndinni ásamt upplýsingum um nafn og símanúmer í tölvupósti á netfangið efling@efling.is með viðfangsefninu „Ljósmyndasamkeppni“. Athugið að ljósmyndasamkeppnin er eingöngu ætluð félagsfólki Eflingar . Myndirnar verða notaðar á miðlum Eflingar og í orlofshúsum Eflingar. Skilafrestur er 31. ágúst 2026. Vinningshafar verða tilkynntir 17. september 2026. Hér að neðan má sjá vinningsmyndina frá síðasta ári, mynd Agnieszku Górka, af lunda á Borgarfirði eystri.
Eftir Freyr Efling 28. maí 2026
Vaxtahækkanir Seðlabankans eru í reynd skattahækkanir sem lenda nær eingöngu á skuldsettum heimilum, ungu fólki og tekjulægri hópum, skrifar Stefán Ólafsson, prófess or emeritus og sérfræðingur hjá Eflingu, í nýrri grein. Stefán bendir í greininni á að þeir sem valdi mestum eftirspurnarþrýstingi í hagkerfinu, tekjuhærri og eignameiri hópar, finni lítið fyrir vaxtahækkunum og geti jafnvel hagnast á þeim. Í greininni rökstyður Stefán að vaxtahækkanir séu bæði óréttlátar og ómarkvissar leiðir til að berjast gegn verðbólgu. Á meðan skuldug heimili hafi þurft að taka á sig hundruð þúsunda króna hækkun á greiðslubyrði hafi bankar og fjármagnseigendur hagnast gríðarlega. Hann telur að markvissari og réttlátari leið væri að beita tímabundnum skattahækkunum á efnameiri hópa í stað þess að „kreista rangan hóp“. Raunar væru almenn skattahækkun mun markvissari og skjótvirkari leið til að slá á verðbólguna, með því að minnka einkaneyslu. Tekjur af vaxtahækkunum renna til banka og fjármagnseigenda, og skapa með því ofurhagnað bankanna, á meðan að tekjur af skattahækkunum myndu renna til ríkissjóðs. Stefán gagnrýnir jafnframt að núverandi hagstjórn byggi á úreltum hugmyndum nýfrjálshyggju og kallar eftir nýrri stefnu þar sem velferð, réttlæti og markviss hagstjórn séu sett í forgang. Vaxtahækkun er skattahækkun á rangan hóp Vaxtahækkun er ígildi skattahækkunar sem lendir eingöngu á þeim sem skulda. Þau sem skulda mest eru yngra fólk sem glímir við að stofna fjölskyldu og koma sér upp íbúðarhúsnæði, og sum með miklar námsskuldir að auki. Þau sem eiga minna sparifé og hafa lægri tekjur þurfa að skuldsetja sig meira vegna íbúðakaupa. Þetta eru afmarkaðir hópar í samfélaginu en ekki allir. Þau tekjuhærri og eignameiri finna minna eða ekkert fyrir þessum álögum á skuldara, bæði vegna minni skulda og hærri tekna. Þau skuldugri og tekjulægri eru ekki helstu orsakavaldar verðbólgunnar, heldur frekar hin tekjuhærri og eignameiri, sem hafa meira umleikis. Þessi skattahækkun á skuldara er þess vegna ekki að draga úr neyslu og fjárfestingum þeirra tekjuhærri og eignameiri að ráði, heldur bitnar fyrst og fremst á launafólki í verkalýðsstétt og millistétt. Með vaxtahækkun er verið að kreista rangan hóp. Seðlabankinn er enn að hækka vexti/skatta á þetta fólk í von um að vega gegn verðbólgunni. Hvers vegna er það helsta úrræðið þó árangurinn sé lítill? Til að svara því er gagnlegt að rifja upp forsendur peningastefnunnar. Peningastefnan skýrð Forsenda seðlabanka er almennt sú að verðbólga sé vegna of mikillar eftirspurnar í hagkerfinu (of mikil neysla, of mikil fjárfesting). Það sé vegna þess að of mikið peningamagn sé í umferð (laun almennings séu of há, lánsfé sé of auðsótt og of ódýrt). Eftirspurnarþrýstingur er hins vegar bara ein af mörgum mögulegum orsökum verðbólgunnar. Aðrar orsakir kalla á önnur úrræði.[1] En bíðum með það. Samkvæmt peningamagnskenningu Miltons Friedman og annarra nýfrjálshyggjumanna er þá leiðin sú að draga úr peningamagni í umferð. Vaxtahækkun er aðferðin til þess sem hefur verið í tísku á undanförnum árum á Vesturlöndum, en hún bitnar „óvart“ mest á þeim sem minnst hafa aflögu. Þau sem alla jafna hafa mest peningamagn í umferð eru ríkari helmingur þjóðarinnar, fjármagnseigendur og fyrirtæki sem ganga vel. Ætla mætti að peningastefnan reyndi að hægja mest á umferð peningamagns þeirra. En það hefur ekki verið í tísku, sennilega vegna þess að ríkasta fólkið sem hefur mestu völdin og hagfræðingar þeirra vilja hlífa sjálfum sér. Markmið vaxtahækkana á semsagt að vera að draga úr kaupgetu og fjárfestingargetu í hagkerfinu. Draga úr eftirspurnarþrýstingi á verðbólguna. Það sem er líkt og ólíkt með vaxtahækkun og skattahækkun Vaxtahækkanir reyna að ná fram sömu áhrifum og almenn skattahækkun myndi ná fram. Raunar væri almenn skattahækkun mun markvissari og skjótvirkari leið til að slá á verðbólguna. Hún getur dregið úr kaupmætti alls almennings (minnkað einkaneyslu) og ef hún lendir líka á fyrirtækjum og fjármagnseigendum þá dregur hún væntanlega líka úr fjárfestingum í efnahagslífinu. Aðrar leiðir eru líka til að draga úr fjárfestingum (t.d. varúðartæki seðlabanka og reglun á fjármálamörkuðum). Vaxtahækkun virkar þannig á eftirspurnina eins og skattahækkun, en með mun takmarkaðri áhrifamætti. Kostur skattahækkunar stjórnvalda umfram vaxtahækkun er sá að mun auðveldara er að stýra áhrifum skattahækkunar á þá hópa og atvinnugreinar sem eru að valda mestum eftirspurnarþrýstingi - og það eru yfirleitt aðrir en tekjulægri helmingur þjóðarinnar. Skattahækkanir geta þannig verið mun markvissari en vaxtahækkanir á skuldara. Með markvissari virkni þarf ekki að fórna jafn miklum hagvexti og fylgir vaxtahækkunum Seðlabankans. Þó áhrif vaxtahækkana séu þau sömu og af beinum skattahækkunum fyrir þá sem fyrir verða þá er eðlismunur á framkvæmdinni. Vaxtahækkun er skattahækkun sem Seðlabankinn og viðskiptabankar stýra og tekjurnar af henni renna til banka, fjármagnseigenda og lífeyrissjóða (þ.e. til fjármálamarkaðarins), en ekki í ríkissjóð eins og gerist við skattahækkanir sem ríkið framkvæmir. Þess vegna leiða vaxtahækkanir til ofurhagnaðar banka, sem eru með mestu útlánin. Hagnaðurinn er síðan greiddur sem arður til eigenda bankanna og í bónusa til stjórnenda . Mun gagnlegra fyrir almenning er að þetta fé renni allt í ríkiskassann og nýtist þar til að forða halla á fjárlögum og til að viðhalda innviðum og velferð. Ef markvissum, hóflegum og tímabundnum skattahækkunum hefði verið beitt í stað vaxtahækkana þegar verðbólgan rauk upp árin 2022 og 2023 þá hefði verið hægt að eyða hallanum á ríkisbúskapnum miklu fyrr, halla sem kom til á Kóvid-tímanum og fólst mest í stuðningi við fyrirtæki í atvinnugreinum tengdum ferðaþjónustu. Það hefði breytt öllu fyrir verðbólgustigið í kjölfarið. Þá værum við ekki í neinum vanda núna og gætum einbeitt okkur að því að efla hagvöxtinn, innviðina og velferðina. Dreifing byrða af vaxtahækkun og skattahækkunum er ólík Vaxtahækkanir virka þannig alveg eins og skattahækkanir en lenda mest á röngum hópum, ef ætlunin er að beita þeim til að draga úr eftirspurnarþenslu vegna of mikillar einkaneyslu og fjárfestinga. Þegar svona aðgerðum gegn sameiginlegu vandamáli (verðbólgu) er einungis beint að afmörkuðum hópi í samfélaginu þá þurfa þær að vera grimmari en ef þær væru víðtækari og markvissari. Ein vaxtahækkun getur hækkað greiðslubyrði skuldugrar fjölskyldu um tugi þúsunda króna á mánuði. Ör stýrivaxtahækkun á stuttum tíma (t.d. úr 2% í 9,25% eins og varð 2022 og 2023) verður að risavaxinni skattahækkun á skuldugar fjölskyldur. Hjá mörgum hækkuðu afborganir af óverðtryggðum lánum á þessum tíma á bilinu 100 til 200 þúsund krónur á mánuði. Minni fyrirtæki sem skulda á innlendum markaði fleyta áhrifum þessara vaxtahækkana sem á þeim lenda beint út í verðlagið. Þar er dæmi um að vaxtahækkun leiðir beinlínis til aukinnar verðbólgu. Það er auðvitað risavaxinn galli á vaxtahækkunum! Stór fyrirtæki í útflutningi taka lán erlendis og finna ekki fyrir vaxtahækkunum hér á landi. Erlendir aðilar sem byggja hótel hér ekki heldur. Þessir aðilar eru stikkfrí, þó þeir geti valdið miklum eftirspurnarþrýstingi! Vaxtahækkanir draga heldur ekki úr fjárfestingum lífeyrissjóða sem eru almennt stærsta hreyfiafl efnahagslífsins. Annar galli er sá að vaxtahækkanir draga ekki úr einkaneyslu rúmlega tveggja milljóna ferðamanna sem koma til landsins á ári hverju. Þau sem skulda minna (oftar eldra fólk og þau sem hafa hærri tekjur), sem og efnaðir fjármagnseigendur sem hafa stóraukið sparifé sitt að undanförnu, finna lítið sem ekkert fyrir skattahækkunum sem felast í vaxtahækkunum. Raunar geta aðilar í þessum hópum grætt á vaxtahækkun, t.d. með hærri ávöxtun á sparifé - sem er þá ígildi skattalækkunar fyrir þá. Og þetta eru einmitt þeir þjóðfélagshópar sem standa helst fyrir verðbólguhvetjandi eftirspurnarþenslu, með mikilli neyslu og fjárfestingum. Þetta er semsagt allt á röngunni! Vaxtahækkun er þannig í senn mjög óréttlát og ómarkviss aðgerð , illa hönnuð skattahækkun, sem hefur sýnt sig að skila takmörkuðum árangri í lækkun verðbólgu. Hvers vegna er hægt að sætta sig við mikla skattahækkun á þau yngri, tekjulægri og eignaminni, í formi vaxtahækkana, um leið og þeim betur settu er hlíft og jafnvel ívilnað? Hvers vegna? Hvers vegna ekki að hækka skatta á þá efnuðustu? Þegar gengist er við því að vaxtahækkanir eru ekkert annað en skattahækkanir sem beinast þó einungis að takmörkuðum hluta þegnanna (oftast röngum hópum) þá blasir óréttlætið og óskynsemin við. Hvers vegna ekki að skattleggja þá sem standa fyrir mesta eftirspurnarþrýstingnum, þá efnameiri og tekjuhærri? Þá fyrst gæti þessi aðferð farið að skila alvöru árangri í lækkun verðbólgunnar. Adam Smith, guðfaðir hagfræðinnar, mælti með því að þeir efnameiri bæru mestu skattbyrðina. Ef hækka þarf skatta tímabundið til að slá á eftirspurnarþenslu ætti þá að beina skattahækkuninni fyrst og fremst á beiðu bökin - ef menn vildu fylgja forskrift Adams Smith. Raunar væri skynsamlegast að hækka ekki skatta á þá tekjulægri og eignaminni heldur einungis á þá efnaðri, sem sannarlega hafa borð fyrir báru og bera að auki mesta sök á verðbólgunni. Það væri leið velferðarkapítalisma í anda John Meynard Keynes og höfunda hugmyndarinnar um velferðarríki, svo sem Jeremy Bentham, John Stuart Mill og William Beveridge. Þangað eigum við að stefna en ekki í átt að bandarísku auðræði fárra. En til að fara þá leið þurfa stjórnmálamenn og hagfræðingar þeirra að stíga út fyrir þröngan ramma nýfrjálshyggju-hagfræðinnar og hafa þar með þor til að breyta virkni samfélagsins, með bæði réttlátari og skilvirkari hagstjórn. Við eigum ekki að fórna hagvextinum á altari vaxtahækkana, sem byggja á úreltum og óréttlátum hugmyndum nýfrjálshyggju-hagfræðinnar (sjá grein mína í Heimildinni " Efnahagslífið: Stöðnun til 2028? "). Vonandi hefur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur dug til að taka alvöru skref í þessa átt, sem og að grípa inn í húsnæðismarkaðinn og fjármálamarkaðinn með reglun, eins og ég hef áður bent á (sjá t.d. greinina " Verðbólgan: Betri leið er í boði "). Tími á alvöru breytingar í hagstjórninni er löngu runninn upp. Stefán Ólafsson er prófessor emeritus við HÍ og starfar sem sérfræðingur hjá Eflingu. Greinin birtist fyrst í Heimildinni 26. maí 2026. [1] Eftirspurnarþrýstingur er auðvitað ekki eina hugsanlega orsök verðbólgunnar og því er sjónarhorn peningastefnunnar ófullnægjandi frá byrjun. Aðrar orsakir eru t.d. innflutt verðbólga (hækkanir á heimsmarkaði á olíu, matvælaverði o.fl.), hagnaðardrifin verðbólga (t.d. taumlausar hækkanir leigu og íbúðaverðs sem rekja má til misvægis á húsnæðismarkaði o.fl.) og einfaldlega sókn fyrirtækja í meiri hagnað. Loks er ótalin eftirspurnarþenslan sem fylgir örri fjölgun erlendra ferðamanna, og fleira mætti nefna. Aðrar orsakir en eftirspurnarþrýstingur kalla á önnur úrræði en felast í beitingu vaxtahækkana.
Eftir Freyr Efling 27. maí 2026
Skrifstofa Eflingar stéttarfélags opnar síðar en vant er næstkomandi föstudag, 29. maí, vegna starfsmannafundar. Skrifstofan opnar klukkan 10:00 þann dag í stað klukkan 9:00 líkt og vant er.
Sýna fleiri fréttir