Pallborðsumræður um húsnæðismál
Leigjendasamtökin standa fyrir pallborðsumræðum um húsnæðismál 2. maí næstkomandi, í fyrirlestrasal Grósku, frá klukkan 15:00 til 17:00. Oddvitum framboðanna í Reykjavík er boðið í pallborðið til að svara spurningum um stefnu framboðanna í þessum mikilvæga málaflokki fyrir borgarstjórnarkosningar 16. maí. Viðburðurinn er opinn almenningi.
Ragnar Þór Ingólfsson, ráðherra húsnæðismála, mun flytja opnunarerindi og fara yfir hvernig samstarf ríkis og sveitarfélaga hefur áður leyst húsnæðiskreppur. Spyrlar verða Guðmundur Hrafn Arngrímsson og Sigurður Stefánsson. Áætlað er að viðburðurinn standi í um tvær klukkustundir og hann verður tekinn upp og áætlað að honum verði streymt á Vísi.


