Samstaða og kraftur einkenndi Eflingarþing – Myndir

Dagsetning

3. mars 2026

deila

Fyrsta Eflingarþingið fór fram 26.-27. febrúar síðastliðinn. Er óhætt að segja að þingið hafi tekist afburða vel. Um 200 öflugir Eflingarfélagar komu saman í Austurbæjarbíói til að móta stefnu félagsins og ræða helstu hagsmunamál verkafólks. Á þinginu fór fram fjölbreytt málefnavinna þar sem þingfulltrúar unnu saman í hópum, skiptust á skoðunum og lögðu fram tillögur að áherslum næstu missera. Afurðin var meðal annars fjórar meitlaðar ályktanir um eignarhúsnæði, leiguhúsnæði, launasvik og kjarasamningsbort, og valdeflingu verkafólks á vinnustað. 



Þingfulltrúar unnu einnig saman í svokölluðum starfsgreinahópum þar sem þeir ræddu sameiginleg málefni út frá sínum starfsvettvangi og deildu reynslu sinni. Sú vinna var mikilvægur liður í að tryggja að málefni ólíkra starfsgreina innan félagsins heyrist skýrt.

Gestir, erlendir sem innlendir, ávörpuðu þingið og lögðu sitt af mörkum til umræðunnar, en erindi þeirra vöktu athygli og urðu kveikja að frekari umræðum meðal fundarmanna. 



Meðfylgjandi myndir frá þinginu gefa innsýn í stemninguna, allt frá málefnavinnu og starfsgreinahópum til ávarpa gesta.

Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Efling’s autumn education programme is off to a strong start, with registrations exceeding expectations. Members have already had the opportunity to learn about their rights as tenants and employees. Tonight, 28 October, the focus turns to job searching and career development. The programme aims to help members understand their rights and make the most of the opportunities available to them.
Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Fræðsludagskrá haustsins hjá Eflingu er komin vel af stað og skráning hefur verið framar vonum. Félagsfólk hefur þegar getað fræðst um réttindi sín á leigu- og vinnumarkaði og í kvöld, 28. október, verður fjallað um atvinnuleit og starfsþróun. Markmiðið með fræðslunni er að félagsfólk þekki réttindi sín og viti hvaða möguleikar standa því til boða.
Eftir Sunna Björg Gunnarsdóttir • 26. október 2026
Sólveig Anna Jónsdóttir, chair of Efling, met today with Jónína Rósa Hjartardóttir, chair of Átak, the association of people with intellectual disabilities , and Heiða Vigdís Sigfúsdóttir, the association’s managing director.
Sýna fleiri fréttir