Stjórn Eflingar fordæmir árasarstríð Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran

Dagsetning

10. mars 2026

deila

Stjórn Eflingar tekur að fullu leyti undir ályktun miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um ólöglegt árásarstríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran, sjá hér:


Á fyrstu klukkustundum hinna ólögmætu árása höfðu Bandaríkin sprengt íranskan barnaskóla og myrt þar hátt í tvö hundruð stúlkur og kennara þeirra. Allt bendir til þess að þar hafi um viljaverk verið að ræða en slíkt er gróft brot á alþjóðalögum og sáttmálum. Við tökum undir kröfur um að glæpurinn verði rannsakaður og þeir seku látnir svara til saka fyrir stríðsglæpadómstól.
 
Árásir Bandaríkjanna og Ísrael á Íran er brot gegn fullveldi landsins og óumdeilanlegum rétti Írana til að ráða eigin örlögum. Árásin er án tilefnis, er glæpur gegn friði og stríðsglæpur, og brýtur þar með gegn sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þannig er um grófa aðför að öllu alþjóðaréttarkerfinu, sem komið var á í kjölfar stríðsglæpa þeirra sem framdir voru í Seinni heimsstyrjöldinni, að ræða, aðför sem siðmenntuðum þjóðum ber skylda að standa gegn.
 
Stjórn Eflingar krefst þess að íslensk stjórnvöld fordæmi stríðsaðgerðir Bandaríkjanna og Ísrael. Ekki gengur að ríkisstjórn Íslands leggi ekki sitt af mörkum í baráttunni fyrir friðsamlegu samskiptum á milli þjóða heimsins. 

Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Efling’s autumn education programme is off to a strong start, with registrations exceeding expectations. Members have already had the opportunity to learn about their rights as tenants and employees. Tonight, 28 October, the focus turns to job searching and career development. The programme aims to help members understand their rights and make the most of the opportunities available to them.
Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Fræðsludagskrá haustsins hjá Eflingu er komin vel af stað og skráning hefur verið framar vonum. Félagsfólk hefur þegar getað fræðst um réttindi sín á leigu- og vinnumarkaði og í kvöld, 28. október, verður fjallað um atvinnuleit og starfsþróun. Markmiðið með fræðslunni er að félagsfólk þekki réttindi sín og viti hvaða möguleikar standa því til boða.
Eftir Sunna Björg Gunnarsdóttir • 26. október 2026
Sólveig Anna Jónsdóttir, chair of Efling, met today with Jónína Rósa Hjartardóttir, chair of Átak, the association of people with intellectual disabilities , and Heiða Vigdís Sigfúsdóttir, the association’s managing director.
Sýna fleiri fréttir