Ný vefsíða Eflingar – Gríðarlegt framfaraskref í þjónustu við félagsfólk

Dagsetning

10. mars 2026

deila

Ný vefsíða Eflingar – Gríðarlegt framfaraskref í þjónustu við félagsfólk

Ný vefsíða Eflingar stéttarfélags var tekin í notkun nú í morgun. Með henni er mikið framfaraskref stigið í þjónustu við félagsfólk. Með nýju vefsíðunnu stórbatnar þjónusta við félagsfólk, þannig er hægt að nálgast upplýsingar um réttindi með mjög einföldum hætti ásamt því að leit í kjarasamningum og launatöflum hefur tekið byltingarkenndum breytingum.

Um er að ræða umfangsmikla endurnýjun á vef félagsins sem gerir aðgengi að upplýsingum um réttindi og þjónustu bæði einfaldara, skýrara og notendavænna en nokkru sinni fyrr. Með nýju vefsíðunni verður þjónusta við félagsfólk bæði öflugri og skilvirkari. Þar er meðal annars hægt að nálgast upplýsingar um réttindi Eflingarfélaga með einföldum hætti með því að skrá inn á hvaða vinnustað viðkomandi starfar. Þannig geta félagsmenn hratt og örugglega fundið þær upplýsingar sem eiga beint við um þeirra störf og réttindi.


Framsetning launtaflna og kjarasamninga hefur jafnframt tekið stakkaskiptum. Leit í samningum er nú mun aðgengilegri og auðveldara en áður að lesa úr þeim og finna þá kafla sem skipta hvern og einn félagsmann máli. Á síðunni eru einnig settar fram á skýran og aðgengilegan hátt upplýsingar um þá þjónustu og þau réttindi sem Efling veitir félagsfólki sínu.


Útlit síðunnar hefur verið hannað frá grunni og allri virkni hennar breytt með það að leiðarljósi að gera notkunina eins einfalda og þægilega og mögulegt er. Nýja síðan er því bæði nútímaleg, skýr og hönnuð með þarfir félagsfólks að leiðarljósi.


Unnið hefur verið að þróun nýju síðunnar síðustu misseri og hefur verkefnið verið eitt stærsta stafræna þróunarverkefni Eflingar til þessa. Starfsmenn allra sviða skrifstofu Eflingar komu að vinnunni og lögðu sitt af mörkum til að tryggja að síðan endurspegli sem best þarfir félagsfólks. Síðan var smíðuð af fyrirtækinu Klick í nánu og afar farsælu samstarfi við starfsfólk Eflingar.



Tilkoma nýju síðunnar er mikið fagnaðarefni fyrir bæði félagsfólk og starfsfólk Eflingar. Hún er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu þjónustu félagsins og hluti af þeirri skýru stefnu Eflingar að bæta aðgengi félagsmanna að upplýsingum, réttindum og þjónustu.


Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Efling’s autumn education programme is off to a strong start, with registrations exceeding expectations. Members have already had the opportunity to learn about their rights as tenants and employees. Tonight, 28 October, the focus turns to job searching and career development. The programme aims to help members understand their rights and make the most of the opportunities available to them.
Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Fræðsludagskrá haustsins hjá Eflingu er komin vel af stað og skráning hefur verið framar vonum. Félagsfólk hefur þegar getað fræðst um réttindi sín á leigu- og vinnumarkaði og í kvöld, 28. október, verður fjallað um atvinnuleit og starfsþróun. Markmiðið með fræðslunni er að félagsfólk þekki réttindi sín og viti hvaða möguleikar standa því til boða.
Eftir Sunna Björg Gunnarsdóttir • 26. október 2026
Sólveig Anna Jónsdóttir, chair of Efling, met today with Jónína Rósa Hjartardóttir, chair of Átak, the association of people with intellectual disabilities , and Heiða Vigdís Sigfúsdóttir, the association’s managing director.
Sýna fleiri fréttir