12. febrúar 2026

Bráðamóttökunni blæðir út – Starfsfólk krefst tafarlausra aðgerða

Dagsetning

12. febrúar 2026

deila

Öryggi starfsfólks og sjúklinga á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi er stefnt í hættu á degi hverjum. Ekki er hægt að tryggja sýkingavarnir, brunavarnir eða persónuvernd. Starfsfólk og sjúklingar eru því í aðstæðum þar sem hætta á smitum, slysum, ofbeldi og öðrum alvarlegum atvikum eru augljós og viðvarandi. Þessi staða hefur verið ljós um árabil en verið hunsuð af heilbrigðisyfirvöldum. Bregðast verður við nú þegar, að öðrum kosti verða afleiðingarnar af áður óþekktum og hörmulegum skala.


Þetta er meðal þess sem kom fram á sameiginlegum fundi stéttarfélaga starfsfólks bráðamóttökunnar sem haldinn var miðvikudaginn 11. febrúar. Að fundinum stóðu Efling stéttarfélag, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Læknafélag Íslands, Sjúkraliðafélag Íslands og Sameyki. Gríðarlegt fjölmenni var á fundinum, um 180 manns, og þungt í fólki hljóðið.


Á fundinum lýsti starfsfólk bráðamóttökunnar aðstæðum þar með þeim hætti að engum sem á hlýddi ætti að blandast hugur um að neyðarástand ríki þar. Viðbragðsgeta deildarinnar er lömuð vegna mikils fjölda innlagðra sjúklinga þar, sem ættu að vera fluttir á viðeigandi legudeildir á spítalanum. Starfsfólk lýsti þreytu, angist, sorg og reiði yfir aðstæðunum, en jafnframt stolti, samheldni, og vilja til að fá að sinna vinnu sinni við mannsæmandi aðstæður. Krafan er að þar til bær yfirvöld bregðist þegar við áður fram komnum upplýsingum um ástandið og geri þegar í stað úrbætur, í þágu starfsfólks, sjúklinga, aðstandenda og samfélagsins alls.


Fundurinn samþykkti samhljóða, með kröftugu lófataki ályktun þar sem stöðunni var lýst og kröfur um aðgerðir voru settar fram. Ályktunina má lesa hér að neðan. 


ÁLYKTUN FUNDAR STARFSFÓLKS BRÁÐAMÓTTÖKU LANDSPÍTALA

11. febrúar 2026


Aðstæður á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi eru svo alvarlegar að dag hvern stefna þær öryggi sjúklinga og starfsfólks í bráða og óverjandi hættu. Þetta hefur lengi verið opinbert og viðurkennt af stjórnendum spítalans, embætti landlæknis og heilbrigðisyfirvöldum, án þess að brugðist hafi verið við með fullnægjandi hætti. 


Daglegur fjöldi innlagðra sjúklinga er langt umfram það sem húsnæði, mönnun og öryggiskerfi þola. Afleiðingin er sú að hvorki er hægt að tryggja öryggi sjúklinga né starfsfólks, fullnægjandi sýkingavarnir, brunavarnir eða persónuvernd. Spítalinn hefur verið á hæsta viðbúnaðarstigi í meira en heilt ár án þess að heilbrigðisyfirvöld hafi brugðist við. Aðgerðaleysið endurspeglar það úrræðaleysi og þau lausatök sem Ríkisendurskoðun hefur bent á. 


Landlæknir staðfesti í minnisblaði 2. júní 2022 að bráðamóttakan uppfyllti ekki faglegar kröfur vegna þrengsla, of mikils sjúklingafjölda og undirmönnunar og að hvorki væri hægt að tryggja öryggi sjúklinga né gæði þjónustu. Landlæknir sagði á þeim tíma að í raun væri réttast að loka deildinni vegna hættu og óviðunandi aðstæðna, en viðurkenndi jafnframt að það væri ekki raunhæfur kostur þar eð deildin er ein sinnar tegundar á landinu og sinnir lífsnauðsynlegri þjónustu. 


Þessar alvarlegu yfirlýsingar landlæknis voru hunsaðar. Síðan hefur staðan ekki batnað, heldur versnað. 


Yfir 100 sjúklingar eru að jafnaði vistaðir í rými sem er hannað fyrir 36. Einangrun er ómöguleg, órólegum eða óstöðugum sjúklingum er ekki tryggt öryggi og súrefniskútar ásamt öðrum búnaði eru eins og hráviði á göngum bráðamóttökunnar með augljósri bruna- og sprengihættu. Þetta er alvarleg öryggisógn fyrir starfsfólk og sjúklinga, og með þessum fjölda sjúklinga eru vinnuaðstæður starfsfólks fullkomlega óboðlegar.


Bráðamóttakan hefur í lengri tíma verið að sinna innlögðum sjúklingum sem eiga að vera komnir á viðeigandi legudeildir. Það er ekki hlutverk bráðamóttökunnar að reka tvöfalda legudeild ofan á bráðaþjónustu. Það lamar viðbragðsgetu bráðamóttökunnar og hindrar starfsfólk í að fá næði og frið til að sinna lögbundnu starfi sínu í móttöku og meðferð slasaðra og bráðveikra.


Starfsfólk neyðist til að starfa við aðstæður sem ganga gegn faglegri þekkingu þess og viðurkenndum viðmiðum um góða og örugga heilbrigðisþjónustu. Slíkt ástand er óverjandi og hefur varanleg og neikvæð áhrif á starfsfólk og gæði þjónustu. 


Starfsfólk og sjúklingar eru sett í aðstæður þar sem hætta á smiti, slysum, ofbeldi og alvarlegum afleiðingum er augljós og viðvarandi. 


Í desember greindust átta starfsmenn með leynda berkla. Þetta undirstrikar afleiðingar þess að sýkingavarnir og aðbúnaður eru ekki í samræmi við lög og reglur. Aðgerðaleysi í uppbyggingu og fjárfestingu í heilbrigðisinnviðum hefur skapað kerfisbundinn vanda sem nú birtist með skýrum og hættulegum hætti á bráðamóttökunni. 


Við krefjumst þess að vinnustaðurinn uppfylli lög um hollustuhætti, öryggi og aðbúnað og að tafarlaust verði gripið til aðgerða enda ríkir viðvarandi og versnandi neyðarástand og við því verður að bregðast nú þegar.


Við krefjumst þess jafnframt að þeir aðilar sem bera lögbundna ábyrgð bregðist strax við og fylgi eftir athugasemdum, úttektum og nefndarniðurstöðum sem áður hafa komið fram:


  • Embætti landlæknis fylgi úrbótum eftir af festu af þegar gerðu mati á aðstæðum deildarinnar.
  • Vinnueftirlitið framkvæmi heildstæða úttekt á aðbúnaði starfsfólks og bregðist við brotum á vinnuverndarlögum. 
  • Heilbrigðiseftirlit taki út aðstæður með tilliti til hollustuhátta og smitvarna. 
  • Eldvarnaeftirlit fylgi eftir mati sínu á brunahættu vegna súrefnisbúnaðar og þrengsla. 
  • Persónuvernd kanni aðstæður með tilliti til friðhelgi og verndar sjúklinga. 
  • Heilbrigðisyfirvöld geri úttekt á skaða og dánartíðni sjúklinga með tilliti til dvalarlengdar á bráðamóttöku.


Öryggi sjúklinga og starfsfólks má ekki lengur vera fórnarkostnaður. Það er með öllu óásættanlegt að þessar aðstæður hafi verið látnar óátaldar árum saman þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir. Í stað loforða gerum við kröfu um úrbætur. Þeir sem fara með stjórn og eftirlit í heilbrigðiskerfinu verða að axla ábyrgð og beita völdum sínum strax.


Ályktun send til: 


Embættis landlæknis
Vinnueftirlits
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
Persónuverndar
Forstjóra Landspítala
Heilbrigðisráðuneytis 

Fjármálaráðuneytis 

Forsætisráðuneytis 

Velferðarnefndar Alþingis 

Fjárlaganefndar Alþingis 

Afrit: Fjölmiðlar 

5. mars 2026
Íslenskur leigumarkaður er ekki aukaatriði eða plástur á húsnæðismarkaði. Fjölmargir Eflingarfélagar eru á leigumarkaði til langs tíma og verða vandamál leigumarkaðarins ekki leyst með því einu að vonast til að leigjendur komist í eignarhúsnæði. Þetta er inntak ályktunar sem samþykkt var á Eflingarþingi 27. febrúar síðastliðinn þar sem grundvallarumbóta á íslenskum leigumarkaði er krafist. Í ályktuninni eru tíundaðar kröfur Eflingar stéttarfélags til íslenskra stjórnvalda til að takast á við þann mikla vanda sem uppi er á leigumarkaði. Helstu kröfurnar eru meðal annars: Setja lög og reglur sem takmarka skyndilegar leiguverðshækkanir, styðja langtímasamninga og umbuna traustum leigjendum. Tryggja reglubundið eftirlit með leiguhúsnæði til að meta ástand og sanngjarnt verð. Leigusamningar skulu vera í íslenskum krónum. Húsaleigubætur verði einstaklingsbundnar, byggðar á tekjum hvers leigjanda. Setja skal upp gagnagrunna yfir leigjendur og leigusala, til að stuðla að gagnsæi. Takmarka verður stórtæka skammtímaútleigu fyrir ferðamenn. Stórauka þarf framboð leiguhúsnæðis og tryggja þarf hlut óhagnaðardrifinna leigufélaga í slíkri uppbyggingu. Þá ætti að stofna húsnæðisfélag fyrir verkafólk þar sem mögulegt væri að eignast íbúðir með kaupleigu. Ályktunin fer hér á eftir í heild sinni. Húsaleiga Íslensk stjórnvöld verða að horfast í augu við þá staðreynd að leigumarkaðurinn er ekki aukaatriði eða plástur á íslenskum húsnæðismarkaði. Fjölmargir Eflingarfélagar eru á leigumarkaði til langs tíma og þurfa að treysta á húsaleigusamning sem líflínu í tilveru sinni. Vandamál leigumarkaðarins verða ekki leyst með því einu að vonast til að leigjendur komist í eignarhúsnæði. Á heilbrigðum húsnæðismarkaði getur fólk valið milli þess að eignast húsnæði á viðráðanlegu verði eða að leigja með öruggum og hagkvæmum hætti. Það þarf að koma á mannúðlegum, regluvæddum og stöðugum leigumarkaði sem er raunhæfur valkostur fyrir vinnandi fólk líkt og þekkist í okkar nágrannalöndum. Eflingarfélagar gera eftirfarandi kröfur til íslenskra stjórnvalda í málefnum leigumarkaðarins: Langt því frá nóg hefur verið gert til að koma böndum á heimildir leigusala til að gera tilveru leigjenda að leiksoppi. Setja þarf lög og reglugerðir sem tryggja sanngjarnar og áreiðanlegar hömlur á leiguverðshækkunum, hvetja til þess að samningar haldist til lengri tíma og umbuna traustum leigjendum sem uppfylla öll skilyrði leigusamnings. Tryggja þarf að viðeigandi yfirvöld (t.d. HMS) geti sinnt eftirliti samkvæmt heimildum sem innleiða verður til þess að þessar reglugerðir og lög séu virt. Framkvæma þarf reglubundið eftirlit með leiguhúsnæði, til dæmis á tveggja ára fresti, þannig að hægt sé að meta ástand, ákvarða sanngjarnt markaðsverð og tryggja gæði, öryggi og gagnsæi á leigumarkaði. Leigusamningar skulu vera gerðir í íslenskum krónum, en ekki í erlendum gjaldmiðlum. Leigusalar skulu bera ábyrgð á að skráning leigjenda sem búa í leiguhúsnæði sé rétt og uppfærð. Húsaleigubætur ættu að reiknast út einstaklingsbundið, byggt á persónulegum tekjum hvers leigjanda, frekar en á sameiginlegum tekjum. Slík aðferð væri samkvæmari grein 76 í Stjórnarskrá Íslands, sem tryggir einstaklingsbundin rétt til félagslegrar aðstoðar. Einnig er mikilvægt að setja upp gagnabanka yfir leigjendur og leigusala. Aðgangur að slíkum upplýsingum stuðlar að heilbrigðum leigumarkaði með auknu trausti og gagnsæi í ferlinu fyrir báða aðila. Auk þess þarf að tryggja aðgang að óháðum aðila sem bæði leigjendur og leigusalar geta leitað til, til að skrá og varðveita myndir af ástandi íbúðar fyrir og eftir leigu. Slík skráning getur nýst sem hlutlaus sönnunargögn og stuðlað að sanngjörnu uppgjöri tryggingar/innborgunar við lok leigutíma. Taka þarf mun harðar á þeirri meinsemd sem er skammtímaútleiga á íbúðarhúsnæði fyrir ferðamenn. Útleiga heimilis í skamman tíma innan árs getur átt rétt á sér sem aukabúgrein hjá fjölskyldum. En slíkt á ekki að vera stórtæk atvinnugrein fjárfesta og braskara sem sölsar undir sig verulegan hluta af íbúðarhúsnæðinu sem fólkið í landinu þarf til að geta lifað öruggu og eðlilegu lífi. Auka þarf framboð af leiguhúsnæði, sem lið í viðameiri, fjármagnaðri og tímasettri húsnæðisáætlun stjórnvalda sem unnin er samkvæmt traustum spám og í samráði við sveitarfélögin. Tryggja þarf hlut óhagnaðardrifinna leigufélaga í þeirri uppbyggingu, til að mynda í gegnum Bjarg sem hefur sannað gildi sitt sem hnitmiðað úrræði fyrir fólk á lægri launum. Einnig ætti að setja á fót húsnæðifélag fyrir verkafólk þar sem möguleiki er á að eignast íbúðirnar í gegnum leigu.
4. mars 2026
Rekstraraðilar veitingastaðarins Ítalíu hafa verið dæmdir í atvinnurekstrarbann til þriggja ára. Þeir Elvar Ingimarsson og Björgvin Narfi Ásgeirsson, fyrrum eigendur Ítalgest ehf, rekstarfélags veitingastaðarins, voru dæmdir til atvinnurekstrarbanns í Héraðsdóm Reykjavíkur 12. janúar síðastliðinn. Lansdréttur hefur nú staðfest dóm héraðsdóms. Efling stéttarfélag hóf aðgerðir vegna misnotkunar, launaþjófnaðar og réttindabrota á veitingastaðnum Ítalíu, sem og á öðrum veitingastöðum sem reknir voru af þeim Elvari og Björgvini Narfa, í september 2024. Vakti félagið athygli á fjölmörgum og alvarlegum brotum gegn réttindum verakafólks á umræddum veitingastöðum, sem staðið höfðu í lengri tíma. Trúnaðarráð Eflingar samþykkti ályktun á fundi sínum 12. september 2024 þar sem misnotkun vinnuafls og launaþjófnaður á veitingahúsinu Ítalíu voru fordæmd. Eftir fundinn var gripið til samstöðuaðgerðar á Frakkastíg fyrir utan veitingahúsið. Þá safnaði Efling saman vitnisburðum starfsfólks sem unnið hafði á veitingastöðum þeirra félaga, aflaði gagna og kom þeim á framfæri til að vekja athygli á brotum gegn verkafólki. Töluverð fjölmiðlaumræða skapaðist vegna þessa. Félagið Ítalgest var úrskurðað gjaldþrota 9. október 2024. Í framhaldinu reyndi Elvar að halda því fram að réttmætar aðgerðir Eflingar hefðu leitt til gjaldþrotsins. Það voru ósannindi þar eð krafa um gjaldþrotaskipti Ítalgest hafði verið lögð fram viku áður en aðgerðir Eflingar hófust. Það sýndi því augljóslega í hvers konar öngstræti eigendur þess höfðu komið félaginu, með óábyrgum rekstri og brotum gegn starfsfólki. Dómur héraðsdóms, og staðfesting Landsréttar, staðfestir hvers konar brotastarfsemi átti sér stað við rekstur félagsins. Skiptastjóri þrotabús Ítalgest, Björn Þorri Viktorsson, krafðist þess að þeir Elvar og Björgvin Narfi myndu sæta atvinnurekstrarbanni vegna aðkomu sinnar að félaginu, en rekstur þess minnti fremur á skipulagða brotastarfsemi en rekstur veitingahúsa. Þannig fundust fjölmargar óútskýrðar greiðslur út úr félaginu inn á persónulega reikninga þeirra félaga, eða til fólks þeim tengdum fjölskylduböndum. Kröfur í þrotabúið námu um 116 milljónum króna en því sem næst engar eignir fundust í því. Því voru þeir félagar, Elvar Ingimarsson og Björgvin Narfi Ásgeirsson, sem fyrr segir dæmdir til atvinnurekstrarbanns til þriggja ára, sem er hámarksrefsing samkvæmt lögum.  Efling fagnar því að brugðist sé við því sem virðist hafa verið skipulögð brotastarfsemi til langs tíma af hálfu þeirra félaga. Ótækt er að menn komist upp með að brjóta gegn verkafólki svo árum skiptir, án nokkurra afleiðinga. Hér má sjá umfjöllun Eflingar um brotastarfsemi þeirra Elvars Ingimarssonar og Björgvins Narfa Ásgeirssonar.
3. mars 2026
Gestir, erlendir sem innlendir, ávörpuðu þingið og lögðu sitt af mörkum til umræðunnar, en erindi þeirra vöktu athygli og urðu kveikja að frekari umræðum meðal fundarmanna.  Meðfylgjandi myndir frá þinginu gefa innsýn í stemninguna, allt frá málefnavinnu og starfsgreinahópum til ávarpa gesta.
Sýna fleiri fréttir