Fjölskyldubíó fyrir Eflingarfélaga 19. febrúar – Kafteinn Skögultönn og Greifynjan af Gral
Efling stendur fyrir bíósýningu fyrir félagsmenn sína og fjölskyldur þeirra í vetrarfríi grunnskóla, fimmtudaginn 19. febrúar. Sýnd verður Kafteinn Skögultönn og Greifynjan af Gral í Laugarásbíó klukkan 14:00.
Kafteinn Skögultönn og Greifynjan af Gral er ævintýraleg teiknimynd sem fylgir djarfa sjóræningjanum Kafteinn Skögultönn í baráttunni við hina slægu greifynju af Gral, sem reynir að ná fjársjóði ástkærrar eyju sinnar.
Miðasala er í fullum gangi á Mínum síðum Eflingar undir flipanum vefverslun. Miðinn kostar 500kr. og innifalið er popp og gos eða djús. Hámark 5 miðar fyrir hvern félagsmann.

Eftir Sigrún Efling
•
28. október 2026
Efling’s autumn education programme is off to a strong start, with registrations exceeding expectations. Members have already had the opportunity to learn about their rights as tenants and employees. Tonight, 28 October, the focus turns to job searching and career development. The programme aims to help members understand their rights and make the most of the opportunities available to them.

Eftir Sigrún Efling
•
28. október 2026
Fræðsludagskrá haustsins hjá Eflingu er komin vel af stað og skráning hefur verið framar vonum. Félagsfólk hefur þegar getað fræðst um réttindi sín á leigu- og vinnumarkaði og í kvöld, 28. október, verður fjallað um atvinnuleit og starfsþróun. Markmiðið með fræðslunni er að félagsfólk þekki réttindi sín og viti hvaða möguleikar standa því til boða.

