Greitt úr félagsmannasjóði Eflingar 2. febrúar

Dagsetning

2. febrúar 2026

deila

Í dag, 2. Febrúar 2026, fá félagsmenn Eflingar sem vinna eftir kjarasamningum Eflingar við Samband íslenskra sveitarfélaga greitt úr Félagsmannasjóði. Um er að ræða þá félagsmenn sem vinna hjá Seltjarnarnesbæ, Kópavogsbæ, Mosfellsbæ, Sveitarfélaginu Ölfus, auk þeirra sem vinna hjá Faxaflóahöfnum sf.


Hafi félagsmaður sem á rétt á greiðslum úr Félagsmannasjóði skráð bankaupplýsingar sínar á Mínar síður í Total, félagakerfi Eflingar, fær hann greitt án þess að þurfa að gera nokkuð. Hins vegar er ekki hægt að greiða þeim félagsmönnum sem ekki hafa skráð bankaupplýsingar sínar í kerfið. Þeir félagsmenn sem telja að þeir eigi rétt á greiðslum úr Félagsmannasjóði, en hafa ekki fengið, ættu því að fara inn á Mínar síður og skrá bankaupplýsingar sínar á persónublaðinu í Tótal. Ef viðkomandi félagsmenn eiga rétt á greiðslum úr sjóðnum verða þær greiddar út um næstu mánaðamót.

Allir félagsmenn Eflingar eru jafnframt eindregið hvattir til að fara inn á Mínar síður í Tótal og skrá þar inn netföng sín, símanúmer og bankaupplýsingar, hafi þeir ekki gert það nú þegar. 
Hér má finna leiðbeiningar fyrir Mínar síður Eflingar.

Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Efling’s autumn education programme is off to a strong start, with registrations exceeding expectations. Members have already had the opportunity to learn about their rights as tenants and employees. Tonight, 28 October, the focus turns to job searching and career development. The programme aims to help members understand their rights and make the most of the opportunities available to them.
Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Fræðsludagskrá haustsins hjá Eflingu er komin vel af stað og skráning hefur verið framar vonum. Félagsfólk hefur þegar getað fræðst um réttindi sín á leigu- og vinnumarkaði og í kvöld, 28. október, verður fjallað um atvinnuleit og starfsþróun. Markmiðið með fræðslunni er að félagsfólk þekki réttindi sín og viti hvaða möguleikar standa því til boða.
Eftir Sunna Björg Gunnarsdóttir • 26. október 2026
Sólveig Anna Jónsdóttir, chair of Efling, met today with Jónína Rósa Hjartardóttir, chair of Átak, the association of people with intellectual disabilities , and Heiða Vigdís Sigfúsdóttir, the association’s managing director.
Sýna fleiri fréttir