Eflingarþing haldið í fyrsta sinn 26.–27. febrúar

Dagsetning

23. febrúar 2026

deila

Efling stéttarfélag heldur í fyrsta sinn Eflingarþing dagana 26. og 27. febrúar í Austurbæjarbíói. Þingið er nýr og öflugur vettvangur þar sem félagsfólk kemur saman til að móta stefnu og efla baráttu fyrir bættum kjörum og réttindum launafólks.


Yfir 200 Eflingarfélagar, frá rúmlega 30 mismunandi upprunalöndum, taka þátt í þinginu. Þeir endurspegla þann fjölbreytta hóp launafólks sem Eflingu skipa, og gegna lykilhlutverki í að móta sameiginlega sýn og kröfur félagsins.


Markmið þingsins er að styrkja rödd Eflingar, dýpka umræðu um brýn hagsmunamál og auka virkni félagsfólks í starfi félagsins. Ályktanir þingsins munu marka skýra stefnu í baráttumálum Eflingar á komandi misserum, byggðar á vinnu trúnaðarráðs og reynslu félagsfólks á vinnumarkaði.


Dagskráin spannar tvo daga og samanstendur af fyrirlestrum, umræðum og vinnulotum þar sem þingfulltrúar vinna markvisst að tillögum og ályktunum. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, flytur setningarávarp.


Meðal fyrirlesara eru Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur Húsnæðis og mannvirkjastofnunar. Þá taka einnig til máls erlendir gestir sem fjalla um baráttu launafólks á alþjóðavettvangi, þar á meðal Lars Christian Fjeldstad frá norska alþýðusambandinu LO og Anna Bacia, formaður stéttarfélags umönnunarstarfsfólks í Póllandi.

Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Efling’s autumn education programme is off to a strong start, with registrations exceeding expectations. Members have already had the opportunity to learn about their rights as tenants and employees. Tonight, 28 October, the focus turns to job searching and career development. The programme aims to help members understand their rights and make the most of the opportunities available to them.
Eftir Sigrún Efling • 28. október 2026
Fræðsludagskrá haustsins hjá Eflingu er komin vel af stað og skráning hefur verið framar vonum. Félagsfólk hefur þegar getað fræðst um réttindi sín á leigu- og vinnumarkaði og í kvöld, 28. október, verður fjallað um atvinnuleit og starfsþróun. Markmiðið með fræðslunni er að félagsfólk þekki réttindi sín og viti hvaða möguleikar standa því til boða.
Eftir Sunna Björg Gunnarsdóttir • 26. október 2026
Sólveig Anna Jónsdóttir, chair of Efling, met today with Jónína Rósa Hjartardóttir, chair of Átak, the association of people with intellectual disabilities , and Heiða Vigdís Sigfúsdóttir, the association’s managing director.
Sýna fleiri fréttir